Bifröst University
Stjórnunaraðferðir á íslenskum vinnumarkaði : hvernig skal verða fyrirmyndarfyrirtæki?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er skoðað hvernig íslenskur vinnumarkaður hefur þróast frá því að vera nokkuð óálitlegur þar sem lítil tillitssemi og ósvífni ríkti gagnvart starfsfólki. Jafnrétti, kynjamunur, vellíðan starfsfólks og tillit til vinnuaðstæðna var ekki sérlega ofarlega í huga vinnuveitenda hér áður fyrr en hefur þó breyst til muna í seinni tíð. Í verkefninu verður fjallað um baráttu stéttarfélaga sem tengd verður við fræðin sem liggja á bak við fyrirmyndarfyrirtæki og þær rekstrarlegu aðferðir sem fyrirtæki hafa innleitt. VR-könnunin um fyrirmyndarfyrirtæki segir okkur margt um það samband sem starfsfólk á við vinnustað sinn og stjórnendur. Hins vegar er áhugavert að athuga hvort samband sé milli þess að vera fyrirmyndarfyrirtæki og hvort innleiddar séu ákveðnar stjórnunaraðferðir til að hámarka árangur fyrirtækisins. Aðferðafræðin sem var nýtt við þessa rannsókn var eigindleg aðferð í formi viðtala. Eigindleg aðferð var talin vera hæfasti kosturinn við gerð rannsóknarinnar þar sem tilgangurinn var að taka viðtöl við stjórnendur fyrirtækja sem höfðu fengið viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarfyrirtæki. Með eigindlegri aðferð er hægt að rýna í aðferðir stjórnenda baksviðs. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að þeir stjórnendur sem rætt var við, taka mjög alvarlega þau atriði sem spurt var um. Fyrirtækin eru metnaðarfull þegar kemur að skipulagi, rekstri, innleiðingu breytinga, líðan starfsfólks og réttindum þess. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er hægt að draga þá ályktun að öll fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna „Fyrirmyndarfyrirtæki“ séu jafnvíg þeim fyrirtækjum sem rannsökuð voru.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- María Tryggvadóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43523
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43523