Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni var hlutverk fasteignasala í nútíma samfélagi skoðað með hliðsjón af tækniþróun. Rannsókn þessi skilgreinist sem blönduð, þar sem nýttar eru bæði eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir. Eigindlega rannsóknin var á formi hálfstaðlaðra viðtala við fasteignasala og leiðbeinendur í námi til löggildingar fasteignasala. Megindlega rannsóknin var á formi spurningakönnunar sem lögð var fyrir almenning. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara var: Hvert er hlutverk fasteignasala í nútíma samfélagi: hefur virði fasteignasala þróast í takt við tækniþróun? Litið var til þess fræðilega bakgrunns sem tekur til þátta er snúa að viðfangsefni rannsóknarinnar. Má þar finna umfjöllun um fasteignamarkaðinn á Íslandi og þróun undanfarinna ára, hlutverk fasteignasala og breytingar á því, nám til löggildingar fasteignasala, stafræna markaðssetningu, stafræna umbreytingu, neytendahegðun og loks Blue Ocean aðferðafræðina. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að hlutverk fasteignasala hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og þá sér í lagi með setningu núverandi laga um fasteignasölu. Hlutverkið er margþætt og er sýn sérfræðinga og almennings á því ekki að öllu leyti sú sama. Hlutverkið snýr þó að miklu leyti að því að framfylgja þeim skyldum sem fram koma í núverandi lögum. Þó eru mikilvægir þættir í hlutverki fasteignasala sem ekki eru nefndir í lögunum, þrátt fyrir að vera að öllum líkindum jafn mikilvægir og lagalegu skyldurnar. Á heildina litið virðast fasteignasalar ekki ná að nýta tæknina að eins miklu leyti og kröfur segja til um. Þættir eins og rafrænar undirskriftir, rafræn gögn, fjölbreyttari leiðir til að sýna og selja eignir eru mikilvægir í huga neytenda en að miklu leyti ónýttir af hálfu fasteignasala. Af því má draga þá ályktun að virði hlutverks fasteignasala hafi ekki þróast í takt við tækniþróun síðustu ára.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43495
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43495