Back to search

Bifröst University

Þjónustukönnun raforkusala á Íslandi : hvaða munur er á þjónustu raforkufyrirtækja á Íslandi, og í hverju felst hann?

Abstract

dc:description.abstract

Heimsfaraldur Covid 19 og Úkraínustríðið hafa haft gríðarleg áhrif á raforkumarkaðinn um allan heim. Íslendingar geta talist lánsamir að búa hér með nóg af grænni og endurnýjanlegri orku. Hér er hávær umræða um að ekki sé til nóg af rafmagni og virkja þurfi meira til að mæta þeirri þróun sem verið hefur, og til að mæta þeirri breytingu sem felst í orkuskiptunum. En eins og staðan er í dag, eru það forréttindi Íslendinga að raforkuverð hefur ekki hækkað upp úr öllu valdi líkt og í löndum í kringum okkur. Íslendingar taka þessum lífsgæðum sem sjálfsögðum hlut, og velta því ekki endilega mikið fyrir sér hvað þeir séu að borga fyrir orkuna eða hvaðan hún komi. Samkeppni á raforkumarkaði var ekki talin henta. Það var talið hentugast fyrir neytendur að einn aðili sæi um að selja viðskiptavinum rafmagn. En það hefur heldur betur orðið breyting á. Með nýjum raforkulögum sem sett voru 2003 hófst samkeppni á raforkumarkaði. Þó samkeppnin hafi farið hægt af stað þá eru átta raforkusölufyrirtæki á þessum markaði í dag sem virðast keppa einungis í verði. Með þessari rannsókn vill höfundur kanna hvort fyrirtækin séu að einhverju leiti að keppa sín á milli og skapa sér sérstöðu með því að veita góða þjónustu. Á markaði þar sem fyrirtæki bjóða sambærilega vöru þarf að finna leiðir til að ná samkeppnisforskoti. Aðgreining með þjónustu er ein leiðin.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aldís María Valdimarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43486
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43486

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aldís María Valdimarsdóttir 1984-. Þjónustukönnun raforkusala á Íslandi : hvaða munur er á þjónustu raforkufyrirtækja á Íslandi, og í hverju felst hann?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43486