Bifröst University
Nauðungarsölur : álitamál í framkvæmd í tengslum við nauðungarsölur
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er fjallað um nauðungarsölur með sérstöku tilliti til álitamála í framkvæmd er tengjast þeim. Þau hugtök sem helst koma fram ásamt því að vera frekar útskýrð eru t.a.m. andlag, gerðarþoli, gerðarbeiðandi, krafa og veð. Sú aðferð sem nýtt var við ritgerðina er hin lögfræðilega aðferð, þ.e. að greina þær réttarheimildir sem við eiga hverju sinni. Um nauðungarsölur gilda samnefnd lög nr. 90/1991 sem skiptast í fimm þætti. Í byrjun ritgerðar er fjallað almennt um nauðungarsölur, því næst um þær heimildir til að krefjast nauðungarsölu sem er að finna í nauðungarsölulögunum. Fjallað er um framkvæmd og feril nauðungarsölu, frá því að nauðungarsölubeiðni er móttekin hjá sýslumanni þangað til boð er samþykkt í eignina ásamt ýmsu sem kemur til álita þess á milli. Að lokum er fjallað um það þegar gefið er út afsal fyrir eign sem seld hefur verið á nauðungarsölu ásamt þeim kærufresti sem tiltekinn er í lögum um nauðungarsölu. Í lok ritgerðar eru álitamálin og dómarnir teknir saman í heildarniðurstöðu ásamt því að fara yfir það sem betur má fara með tilliti til dómaframkvæmdar. Höfundur ritgerðarinnar telur ljóst að það þurfi að vanda vel til verka við undirbúning og framkvæmd nauðungarsölu, passa að farið sé eftir skýrum ákvæðum nauðungarsölulaganna ásamt því að hafa góðan ramma utan um þá vinnu sem hefst þegar nauðungarsölubeiðni er móttekin og þangað til ferli hennar lýkur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðný Þorsteinsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43480
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43480