Back to search

Bifröst University

Réttarstaða fanga : grundvöllur, tilgangur og framkvæmd OPCAT eftirlits

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um réttarstöðu fanga og þau úrræði sem þeim standa til boða í formi ákvæða stjórnarskrár, mannréttindasáttmála, almennra laga og reglugerða ásamt eftirliti umboðsmanns Alþingis, með áherslu á nýlegt hlutverk hans sem eftirlitsaðila með framkvæmd OPCAT samningsins. Um dýrmæt mannréttindi er að ræða, sjálft frelsið, þegar hinn dæmdi er sviptur frelsi sínu. Í kjölfar baráttu fyrir auknum mannréttindum til handa föngum og umræðna sem átt hafa sér stað í samfélaginu undanfarin ár, hefur vægi OPCAT eftirlitsins aukist og skýrslur þess sýnt að verulegra úrbóta er þörf í fangelsum landsins. Fangelsismálayfirvöld hafa tekið ábendingum OPCAT eftirlitsins með opnum huga og svarað því til að stefnt sé að framkvæmd úrbóta, sérstaklega með tilkomu aukins fjármagns frá stjórnvöldum, sem allra fyrst. Markmið ritgerðarinnar er að fjalla um grundvöll, tilgang og framkvæmd OPCAT eftirlitsins, með tilliti til réttarstöðu fanga og áhrifum þess á hana. Með slíkri umfjöllun mætti eftir atvikum leiða í ljós að sá minnihlutahópur sem hefur takmarkaða rödd í samfélaginu geri sér það ljóst að síðan árið 2018 hefur verið við lýði sérstakt virkt eftirlitskerfi á vegum umboðsmanns Alþingis með því að réttindi fanga séu virt í hvívetna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Glóey Runólfsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43479
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43479

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Glóey Runólfsdóttir 1993-. Réttarstaða fanga : grundvöllur, tilgangur og framkvæmd OPCAT eftirlits. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43479