Back to search

Bifröst University

Borgaralaun

Abstract

dc:description.abstract

Borgaralaun, stundum þekkt sem óskilyrt grunnframfærsla, er sú hugmynd að einstaklingum sé tryggð skilyrðislaus innkoma frá stjórnvöldum. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: „Hvað eru borgaralaun og eru þau raunhæfur kostur í nánustu framtíð?“ Tilgangur verkefnisins er í raun tvíþættur. Annars vegar að skilgreina borgaralaun og skerpa á því hvað hugtakið í raun og veru felur í sér, með því að skoða fyrirliggjandi skilgreiningar og tilgang þeirra, n.tt. hvað þeim er ætlað að leysa. Hins vegar meta hversu raunhæfur kostur þau væru í nánustu framtíð út frá siðferðislegum og efnahagslegum forsendum, með því að skoða hvort skilyrðisleysi borgaralauna sé siðferðislega réttlætanlegt og meta efnahagsleg áhrif borgaralauna og raunkostnað þeirra. Fræðilegur bakgrunnur verkefnisins eru kenningar Van Parijs um raunverulegt frelsi, Nytjastefna Mill og kenning John Rawls um réttlæti sem og ýmsar grundvallarkenningar hagfræðinnar. Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að ákveðin skilyrði þurfi að vera til staðar til þess að réttilega sé hægt að tala um úrræði sem borgaralaun og voru borgaralaun skilgreind sem „Skilyrðislaus, reglubundin peningagreiðsla til allra einstaklinga sem dugir fyrir grunnframfærslu” með hliðsjón af skilgreiningu BIEN og því sem borgaralaunum væri ætlað að leysa. Helstu niðurstöður eru þær að borgaralaun geti ekki talist vera raunhæfur kostur í nánustu framtíð. Frá siðferðilegu sjónarmiði reyndist skilyrðisleysi borgaralauna illa samræmanlegt hugmyndum um réttlæti og auk þess séu þau efnahagslega óraunsæ, að mestu vegna gífurlegs kostnaðar. Veruleg samfélagsleg og efnahagsleg umbylting þyrfti að eiga sér stað ef raunin ætti að vera önnur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Úlfur Atli Stefaníuson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43475
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43475

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Úlfur Atli Stefaníuson 1995-. Borgaralaun. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43475