Abstract
dc:description.abstractÁhugi höfundar á eftirmeðferðarúrræðum vaknaði fyrst um vorið árið 2018 þegar hann kom að stofnun Minningarsjóðs Einars Darra. Hlutverk minningarsjóðsins er að vekja athygli á misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum og öðrum vímuefnum á Íslandi og taka þátt í og stuðla að aukinni forvarnarfræðslu fyrir börn, ungmenni og foreldra. Umræðan um bætt aðgengi og fjölbreyttari meðferðarúrræði var hávær. Áhugi höfundar á áfangaheimilum og eftirmeðferðarúrræðum jókst til muna eftir að hann lauk meðferð hjá SÁÁ við spilafíkn sem er skilgreindur fíknisjúkdómur haustið 2020 og hóf dvöl á áfangaheimili í Reykjavík í kjölfarið. Höfundur hefur því öðlast ákveðna reynslu af því að sækja um dvöl, stunda eftirmeðferðarúrræði og framfleyta sér á áfangaheimili. En að mati höfundar getur reynst mjög erfitt fyrir suma einstaklinga að hefja nýtt líf eftir meðferð við fíknisjúkdómum á viðeigandi meðferðarúrræðum. Félagsleg og fjárhagsleg staða getur verið mjög slæm og einnig andleg og líkamleg líðan. Heiti verkefnisins er „Áfangaheimili: Hlutverk, aðgengi og framtíðarsýn“. Höfundur mun leitast við að kanna hvert sé hlutverk áfangaheimila fyrir fólk með fíknisjúkdóma, hvort aðgengi að áfangaheimilum og eftirmeðferðarúrræðum sé jafnt fyrir alla óháð búsetu og hver sé framtíðarsýnin tengt þessum úrræðum. Skoðað verður sérstaklega hver sé aðkoma ríkis og sveitafélaga þegar kemur að þessum úrræðum, má þar nefna rekstur, fjárhagslegur stuðningur og hugsanlegur ávinningur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Óskar Vídalín Kristjánsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43465
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43465