Back to search

Bifröst University

Áhrif samfélagsmiðla á kauphegðun

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessa lokaverkefnis er samfélagsmiðlar og þá sérstaklega Instagram og hvort sá miðill hafi áhrif á kauphegðun kvenna. Viðfangsefnið hefur af persónulegum ástæðum vakið áhuga höfundar um nokkurt skeið. Samfélagsmiðlar eru orðnir stór hluti af lífi fólks í dag hvort sem okkur líkar það betur eða verr og vísbendingar eru um að mikið og öflugt markaðsstarf fari fram á samfélagsmiðlum. Það getur fylgt því mikil þægindi fyrir neytendur að sjá upplýsingar og auglýsingar á auðveldan hátt á samfélagsmiðlum, kaupa síðan vöruna á internetinu og fá hana svo senda heim að dyrum. Rannsóknarspurningin sem lögð er „Hefur Instagram áhrif á kauphegðun kvenna?“ Í þessu verkefni verður leitast við að kanna áhrif samfélagsmiðla og þá sérstaklega Instagram á kauphegðun kvenna. Það er ósk höfundar að verkefnið gefi einhvern skilning á því hvort og þá hversu mikil áhrif samfélagsmiðlar hafa á kauphegðun kvenna og er markmið verkefnisins að fá innsýn og skilning á því efni. Samfélagsmiðillinn Instagram verður sérstaklega tekinn fyrir og skilgreindur í fræðilegri umfjöllun. Rannsóknin verður unnin sem fræðileg heimildaritgerð en einnig verður gerð eigindleg rannsóknarkönnun, tekin voru viðtöl við sex konur á aldrinum 20 – 59 ára og lagðar fyrir þær 25 spurningar sem tengjast viðfangsefninu. Lýstu þær upplifun sinni af Instagram, mögulegum áhrifum sem sá miðill hefur á kauphegðun þeirra og hvað það er sem hefur helst áhrif á þær á miðlunum. Niðurstöður eigindlegu rannsóknarinnar benda til að Instagram hafi þó nokkur áhrif á kauphegðun kvenna. Niðurstöðurnar sýndu að auglýsingar á Instagram og áhrifavaldar sem auglýsa vöru eða þjónustu hafa einna mest áhrif á kauphegðun viðmælenda. Slíkar auglýsingar fá konur oft til að hugsa um hlutinn eða þjónustuna, fara í verslunina til að skoða nánar eða kaupa á netinu. Ekki var marktækur munur á niðurstöðum eftir aldri viðmælenda. Lykilorð: Samfélagsmiðlar, kauphegðun, áhrif, áhrifavaldar, Instagram, vörumerki

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Linda Bjork Helgadottir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43464
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43464

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Linda Bjork Helgadottir 1971-. Áhrif samfélagsmiðla á kauphegðun. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43464