Back to search

Bifröst University

Hvernig líður þér í vinnunni? Hefur Covid-19 faraldurinn haft áhrif á líðan leikskólastarfsmanna?

Abstract

dc:description.abstract

Síðastliðin tvö ár hafa verið fordæmalaus með tilkomu Covid-19 faraldursins. Samfélagið hefur þurft að aðlaga sig að síbreytilegum sóttvarnarreglum. Fyrirtæki brugðu mörg hver á það ráð að setja starfsmenn í fjarvinnu en sá möguleiki var ekki í boði fyrir leikskóla. Starfsmenn leikskóla voru settir í flokk framlínustarfsmanna og hafa þeir starfsmenn staðið vaktina í öllum bylgjum Covid-19 faraldursins. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna líðan starfsmanna í leikskólum Garðabæjar ásamt því að skoða hvort að starfsmenn upplifi að Covid-19 faraldurinn hafi haft áhrif á líðan þeirra. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við tólf starfsmenn úr fimm leikskólum. Niðurstöður gefa til kynna að starfsmenn leikskóla séu undir miklu álagi og nái sjaldnast að sinna öllum þeim verkefnum sem í þeirra verkahring eru. Álagið tengist fjölda verkefna, mönnun leikskóla ásamt vinnuaðstæðum. Covid-19 faraldurinn hafði áhrif á líðan starfsmanna hvað varðar aukið álag, kvíða og ótta. Niðurstöður benda til þess að álagið hafi verið til staðar fyrir tíma Covid-19 en að faraldurinn hafi aukið þar á. Með hólfaskiptingu leikskóla upplifðu starfsmenn leikskóla hve mikilvægur félagslegur stuðningur er á vinnustað og sérstaklega þegar að starfsmenn vinna undir miklu álagi. Niðurstöður benda til þess að endurskoða þurfi þá verkferla sem farið er eftir hvað varðar fjölda starfsmanna og barna á hverjum leikskóla fyrir sig með vellíðan barna og starfsmanna að leiðarljósi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Málfríður Dögg Sigurðardóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43453
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43453

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Málfríður Dögg Sigurðardóttir 1980-. Hvernig líður þér í vinnunni? Hefur Covid-19 faraldurinn haft áhrif á líðan leikskólastarfsmanna?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43453