Bifröst University
Áskoranir og úrræði íslenskra fatafyrirtækja í Covid-19 heimsfaraldri : stafræn umbreyting
Abstract
dc:description.abstractÍslensk fatafyrirtæki hafa þurft að takast á við ýmsar áskoranir í kjölfar Covid-19 heimsfaraldurs. Heimur viðskipta tók á sig stafræna mynd og hafa fyrirtæki þurft að leita lausna til að koma til móts við nýjar þarfir viðskiptavina og aðlagast síbreytilegu umhverfi. Fyrirtæki hafa tileinkað sér breyttar áherslur í rekstri ásamt því að innleiða tækninýjungar, en stafræn umbreyting hefur spilað lykilhlutverk í velgengni þeirra á tímum faraldursins. Stjórnendur hafa gegnt mikilvægu hlutverki í að innleiða breytingar samhliða því að efla starfsanda og stuðla að góðri fyrirtækjamenningu. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða áskoranir og úrræði íslenskra fatafyrirtækja í kjölfar heimsfaraldurs og draga fram upplifun og reynslu stjórnenda af því að takast á við slíkt ástand. Stuðst var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við átta stjórnendur íslenskra fatafyrirtækja. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að íslensk fatafyrirtæki hafi verið reiðubúin fyrir afleiðingar Covid-19, en aðgerðir fatafyrirtækjanna í kjölfar faraldursins snéru aðallega að því að uppfylla breyttar þarfir neytenda og veita framúrskarandi þjónustu. Mikil áhersla var á vefversalnir fatafyrirtækjanna ásamt hröðum og öruggum sendingarmátum. Einnig snéru aðgerðirnar að því að efla starfsanda og undirbúa fyrirtækjamenningu fyrir síbreytilegt umhverfi. Leiðtogahæfni stjórnenda spilaði lykilhlutverk en skilvirkar samskiptaleiðir við starfsfólk og viðskiptavini hafði mikið að segja. Stafræn hæfni fatafyrirtækjanna skipti miklu máli í úrræðum þeirra í kjölfar Covid-19, en íslensk fatafyrirtæki eru misvel á veg komin í innleiðingu sinni í stafrænni umbreytingu. Niðurstöður rannsóknar benda á að íslensk fatafyrirtæki hafi almennt verið reiðubúin fyrir stafræna umbreytingu í kjölfar Covid-19. Lykilhugtök; Covid-19, íslensk fatafyrirtæki, stafræn umbreyting.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dóróthea Jóhannesdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43446
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43446