Bifröst University
Meira salt! Hver voru árhif síldarstúlkna á janfréttis- og kjarabaráttu kvenna
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að kanna hver áhrif síldarstúlkna voru á jafnréttis- og kjarabaráttu kvenna á Íslandi. Áhersla er lögð á þær breytingar sem urðu á upphafs árum síldarævintýrisins með samstöðu síldarstúlkna í baráttu sinni um betri kjör. Síldarminjasafn Íslands veitti leyfi fyrir notkun viðtala sem safnið varðveitir og voru tekin af starfsmönnum safnsins. Viðmælendur eru síldarstúlkur sem unnu í síld, bæði á Siglufirði sem og Raufarhöfn, Seyðisfirði og annarsstaðar á Austfjörðum, og koma víðs vegar af landinu. Kenningaramminn sem notaður er í rannsókninni er byggður á hugtökum Pierres Bourdieu um um félags- og stéttarstöðu í samfélaginu. Síldarstúlkurnar sem um ræðir áttu það allar sameiginlegt að byrja sem börn í síldarvinnu samhliða mæðrum sínum. Þar sem kynslóð á eftir kynslóð varð virkur þátttakandi í ævintýrinu þar sem lífið snerist um síld og meiri síld. Niðurstöður greiningarinnar leiða í ljós að jafnréttis- og kjarabarátta síldarstúlkna hafði veigamikil áhrif á líf verkakvenna og á jafnréttis- og kjarabaráttu kvenna í heild sinni. Með síldinni öðluðust þær meðal annars fjárhagslegt sjálfstæði sem virðist vera lykilbreyta. Síldarstúlkurnar sem veittu viðtölin upplifðu á eigin skinni þær breytingar sem urðu í kjaramálum fyrir tilstilli verkakvennahreyfinga og seinna verkalýðshreyfinga. Lykilhugtök sem notast er við í rannsókninni eru eftirfarandi: Habitus, síldarstúlkur, síldarævintýrið, verkalýðsstétt, verkakvennahreyfing, janfréttis- og kjarabarátta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42953
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42953