Bifröst University
Farsæl hönnun og innleiðing á rafrænni heilbrigðisþjónustu : núverandi staða og viðhorf starfsmanna og stjórnenda til rafrænna lausna í geðþjónustu á Landspítalanum
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar er að vekja athygli á núverandi stöðu rafrænnar heilbrigðisþjónustu Landspítalans og mikilvægi hennar ásamt því að auðvelda öðrum í framtíðinni að hefja undirbúning að farsælli innleiðingu á rafrænni heilbrigðisþjónustu. Fjallað verður um núverandi stöðu Landspítalans út frá fræðum um rafræna heilbrigðisþjónustu og breytingastjórnun, ásamt umfjöllun um mikilvægi þess að nýta rafræna heilbrigðisþjónustu til að bæta aðgengi þjónustunnar, óháð búsetu einstaklings. Rannsakandi kannaði viðhorf og þekkingu starfsmanna og stjórnenda í tengslum við tilgang, notagildi og innleiðingu rafrænna lausna hjá geðþjónustu Landspítalans. Helstu niðurstöður benda til þess að góður undirbúningur og góð samskipti hafi verið til staðar við innleiðingu á rafrænni þjónustu geðþjónustunnar. Kynning og fræðsla fór vel fram og fundu teymisstjórar og teymismeðlimir almennt fyrir góðum stuðningi stjórnenda og innleiðingarteymis við innleiðinguna. Að lokum leggur rannsakandi fram tillögu að undirbúningi og aðferð sem hentar vel við innleiðingu á rafrænni heilbrigðisþjónustu. Unnið verður út frá upplýsingum um fyrri innleiðingar í heilbrigðisþjónustu. Jafnframt verður unnið út frá niðurstöðum átta viðtala við stjórnendur og teymisstjóra hjá fjórum teymum geðþjónustunnar og aðra verkefnastjóra Landspítalans. Einnig verður unnið út frá niðurstöðum spurningalistakönnunar sem send var á alla teymismeðlimi í fyrrnefndum teymum. Ein af niðurstöðum rannsóknarinnar er að mikilvægt er að fara ekki of geyst af stað með innleiðingu á rafrænni þjónustu og vera viss um að viðeigandi búnaður og fræðsla hafi átt sér stað áður en innleiðing hefst. Hins vegar mælir rannsakandi einnig með því að koma þjónustunni af stað í prófun sem fyrst til að vita hvort hún uppfyllir þarfir notenda.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arna Birgisdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42578
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42578