Bifröst University
Áhrif þjálfunar, þróunar, frammistöðumats og starfsmannasamtala á viðhorf, upplifun og hegðun starfsfólks
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvort fjárfesting í þjálfun og notkun formlegs frammistöðumats og formlegra starfsmannasamtala hafi áhrif á viðhorf, upplifun og hegðun starfsfólks. Notað er samsett gagnasafn þar sem gagna er aflað annars vegar á meðal forsvarsmanna mannauðsmála hér á landi og hins vegar á meðal starfsfólks í sömu fyrirtækjum. Niðurstöður sýna að fjárfesting í þjálfun, ein og sér, hefur lítil áhrif á upplifun starfsfólks á sanngirni og mat þess á þegnhegðun síns samstarfsfólks. Fjárfesting í þjálfun, tilvist formlegs frammistöðumats eða formlegra starfsmannasamtala hafa marktæk tengsl á starfsánægju. Tilvist formlegs frammistöðumats hefur ekki marktæk áhrif á upplifun á sanngirni og þegnhegðun samstarfsfólks þegar stýrt er fyrir kyni, aldri, menntun og vinnustundum á viku, auk fjárfestingar í þjálfun og formlegs starfsmannsamtals í þrepaskiptri fjölbreytuaðhvarfsgreiningu. Formleg starfsmannasamtöl hafa lítil áhrif á upplifun starfsfólks á sanngirni og á mat starfsfólks á þegnhegðun síns samstarfsfólks.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Heiður Ósk Pétursdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42576
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42576