Back to search

Bifröst University

Hvernig náum við árangri á fundum? Samanburður á árangri staðfunda, fjarfunda og blandaðra funda, áhrifaþættir og tengsl við starfsánægju, fundaþreytu og áform um starfslok

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að auka þekkingu og skilning á hvað skilar árangri á fundum eftir fundarformi. Skoðað var hvað einkenndi staðfundi, fjarfundi og blandaða fundi og tengsl einkennanna við upplifun um árangur á fundum. Einnig, hvort upplifun af árangri funda hafði tengsl við starfsánægju, fundaþreytu og áform um starfslok. Netkönnun var framkvæmd og 289 svörum safnað með hentugleikaúrtaki af háskólanemendum og snjóboltaúrtaki af notendum Facebook. Niðurstöður sýndu að flestir þátttakenda nýttu öll fundarform, það er staðfundi, fjarfundi og blandaða fundi og voru fjarfundir algengastir. Ekki var munur á upplifun þátttakenda af árangri fjarfunda og staðfunda. Þó voru fjarfundir metnir skilvirkari og vísbendingar voru um að staðfundir væru hentugri fyrir tengslamyndun. Blandaðir fundir voru aftur á móti taldir minnst árangursríkir af þessum þremur fundarformum. Einkenni funda voru flokkuð í fjóra yfirþætti: fundaraðstæður, skipulag, undirbúning og framkvæmd funda. Niðurstöður sýndu að framkvæmd funda hafði sterkust tengsl við árangur funda í öllum fundarformum. Tengsl voru á milli upplifunar á árangri funda og undirbúnings, fundaraðstæðna og skipulags funda en þó mismikið eftir fundarformum. Miðlunarlíkan sýndi fram á fullt miðlunarsamband milli árangurs funda og áforma um starfslok gegnum fundaþreytu og starfsánægju, sem sýnir fram á mikilvægi árangurs¬ríkra funda fyrir fyrirtæki og stofnanir. Heildar ráðlegging til stjórnenda út frá niðurstöðum væri að huga vel að vali á fundarformi með tilliti til tilgangs fundar. Einnig að leggja áherslu á staðfundi fyrir fundi þar sem þörf er á tengslamyndun en fjarfundi ef þörf er á skjótri og skilvirkri úrlausn eða ákvörðunartöku.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagbjört Una Helgadóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42564
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42564

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagbjört Una Helgadóttir 1993-. Hvernig náum við árangri á fundum? Samanburður á árangri staðfunda, fjarfunda og blandaðra funda, áhrifaþættir og tengsl við starfsánægju, fundaþreytu og áform um starfslok. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42564