Bifröst University
Máttur tónlistar : hvernig má efla og bæta tónlistarnám og tónlistarkennslu í skólum Skagafjarðar
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannóknar er að kanna hvernig megi efla og bæta tónlistarnám og tónlistarkennslu í Skagafirði. Leitað er svara hverskonar tónlistarmenntun er til staðar í Skagafirði og hvort breytinga sé þörf. Farið er í gegnum menningu og skólasamfélag og þær stefnur og áætlanir sem sveitarfélögin í Skagafirði vinni eftir í sambandi við list og menningarstarf og kennslu. Farið er í mun á tónmennta og tónlistarkennslu og tengsl tónlistar við annað nám auk þess að kanna samfélagsleg áhrif tónlistar. Rannsóknin er gerð með eigindlegu rannsóknarsniði og byggist á viðtölum við níu einstaklinga sem allir hafa tengingu við tónlistnám og eða tónlistarkennslu innan skóla Skagafjarðar. Niðurstöðurnar eru notaðar til að öðlast skilning á upplifun þeirra og reynslu, viðhorfi og væntingum til viðfangsegnis rannsóknarinnar. Niðurstöðurnar benda til að efla þurfi og bæta tónlistarnám og tónlistarkennslu í Skagafirði. Í viðtölunum koma fram að auka þyrfti metnað innan skagfirsks samfélags gagnvart tónlistnámi og kennslu tónlistar. Viðmælendur voru því allir sammála að tónmenntakennslu sé víða ábótavant og kjörið sé að auka samvinnu og samstarf milli skólastofnana svo sem tónlistarskóla, grunn- og leikskóla. Rannsóknin bendir einnig til þess að samskiptaleysi sé mikið milli tónlistar- og grunnskóla og það sé verkefni sem þurfi að bæta. Eins kemur fram að metnaður tónlistarkennara og stjórnenda sé eitt af því sem móti skipulag innan veggja skóla eða skipulagsheilda og vert sé að skoða aðkomu sveitarfélaga að stjórnun og rekstri tónlistarskólans. Í niðurstöðum kom fram að tækifærin séu til staðar séu þau nýtt á réttan hátt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Halla Bergsdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42556
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42556