Back to search

Bifröst University

Einkenni áhrifavalda

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarin ár hafa stafrænir miðlar þróast töluvert og nýjar leiðir í markaðsmálum hafa litið dagsins ljós. Áhrifavaldamarkaðssetning er ein leið sem markaðsfólk er farið að nýta í miklum mæli í markaðsstarfi. Áhrifavaldar geta haft áhrif á vörumerkjaímynd og getur hún skilað vörumerkjum góðum árangri ef farið er rétt að. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða einkenni áhrifavalda hafa helst áhrif á kauphegðun mæðra barna á aldrinum 0-5 ára. Því var eftirfarandi rannsóknarspurning sett fram „Hvaða einkenni áhrifavalda hafa helst áhrif á mæður ungra barna?“ Til að komast nær því hvaða einkenni áhrifavaldar verða að búa yfir lagði rannsakandi fram spurningakönnun og var hún send út á samfélagsmiðlinum Facebook, bæði á Facebookhópinn „Mæðra tips“ sem og í gegnum fyrirtækjaaðgang rannsakanda. Þýði rannsóknarinnar voru mæður barna á aldrinum 0-5 ára og barst 621 svar í heildina. Ásamt spurningakönnuninni voru tekin viðtöl við þrjá sérfræðinga í samfélagsmiðlum. Svör úr megindlegu sem og eigindlegu rannsóknunum áttu að varpa ljósi á hvaða einkenni áhrifavaldar verða að búa yfir til að hafa áhrif á kauphegðun mæðra. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að áhrifavaldar verða að vera trúverðugir og einlægir. Einnig verða þeir að leggja upp úr að eiga í persónulegum samskiptum við fylgjendur sína og vera samkvæmir sjálfum sér. Til að nálgast mæður ungra barna er vænlegast til árangurs að áhrifavaldurinn eigi sjálfur barn og hafi sérþekkingu á vörunni sem hann er að auglýsa og noti hana í sínu daglega lífi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tanja Sif Ingimundardóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42554
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42554

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tanja Sif Ingimundardóttir 1994-. Einkenni áhrifavalda. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42554