Back to search

Bifröst University

Vörumerkjastjórnun á Íslandi : ekki láta tilviljun ráða för

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessa verkefnis er að koma auga á það hvað Íslensk fyrirtæki eru að gera í stjórnun vörumerkja til þess að standa upp úr á markaðnum. Vörumerki eru gæðastimplar í huga neytenda og styttir þann tíma sem tekur að taka ákvarðanir á kaupum á vöru. Fyrirtæki með skýr vörumerkisloforð og sem standa ávallt við sín loforð munu með tímanum byggja upp traust neytenda og styrkja stöðu sína á markaðnum. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að fá svör við og rauði þráðurinn í gegnum verkefnið var: „Hvað er það sem skiptir máli í góðri vörumerkjastjórnun á íslenskum markaði?“ Farið var yfir þá fræði sem gjarnan er notuð við stjórnun vörumerkja og mikilvægi þess að skapa sér sterka einstaka stöðu á markaði. Þar er farið yfir skilgreiningar hugtaksins vörumerki, stefnumótun vörumerkja, viðskiptasambönd og umtal vörumerkja. Framkvæmd var blönduð rannsóknaraðferð þar sem bæði var send út spurningakönnun og tekin viðtöl. Spurningarkönnunin var send út á samfélagsmiðlum og fengust 1.190 svör sem voru tekin saman og greind í Excel. Tekin voru viðtöl við þrjú fyrirtæki og tvo sérfræðinga á þessu sviði og fengið þeirra sjónarmið á markaðnum og það síðan borið saman við það sem fræðin hefur að segja. Helstu niðurstöður voru að íslensk vörumerki geta gert mun betur og eru tækifæri á markaðnum fyrir þá sem vilja skapa sér einstaka stöðu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Agnes Valgeirsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42543
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42543

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Agnes Valgeirsdóttir 1987-. Vörumerkjastjórnun á Íslandi : ekki láta tilviljun ráða för. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42543