Back to search

Bifröst University

Áhrif COVID-19 á líðan og störf kennara í grunnskólum Reykjanesbæjar

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar þess að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (e. WHO) lýsti yfir neyðarástandi á heimsvísu með tilkomu COVID-19 sem SARS-CoV2 veldur voru skorður settar á skólastarf íslenskra barna vegna fjölda- og fjarlægðartakmarkana. Stjórnendur urðu að bregðast hratt og örugglega við breyttum raunveruleika og aðlaga skólastarfið að þeim nemendafjölda og því rými sem hver og einn skóli hafði til umráða. Rannsókn þessi snýr að upplifun grunnskólakennara í Reykjanesbæ á tímum COVID-19. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort COVID-19 hafi haft áhrif á líðan og störf grunnskólakennara í Reykjanesbæ vegna þeirra aðstæðna sem voru uppi á tímum fjölda- og fjarlægðartakmarkana. Eins miðar rannsóknin að því að kanna hvort breytingarnar sem grípa þurfti til sökum fjöldatakmarkana hafi verið skilvirkar og skýrar að mati kennara. Rannsóknin er byggð á blandaðri aðferð. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem spurningalisti var lagður fyrir grunnskólakennara Reykjanesbæjar og því næst var eigindlegri rannsóknaraðferð beitt til að taka viðtöl við alla sjö skólastjórnendur bæjarfélagsins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að miklar breytingar urðu á störfum kennara á tímum COVID-19 sem orsakaði aukinn kvíða, streitu og andlegt álag. Enn fremur kemur í ljós að stjórnendur studdust ekki við neina verkferla við innleiðingu þeirra breytinga sem grípa þurfti til. Væntingar eru um að niðurstöður rannsóknarinnar muni leiða til markvissrar vinnu að gerð aðgerðaráætlunar sem hægt verður að styðjast við ef til sambærilegra áfalla kemur í náinni framtíð og að niðurstöður leiði til frekari rannsókna á langtímaáhrifum COVID-19 á líðan og störfum grunnskólakennara.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helena Bjarndís Bjarnadóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40590
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40590

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helena Bjarndís Bjarnadóttir 1983-. Áhrif COVID-19 á líðan og störf kennara í grunnskólum Reykjanesbæjar. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40590