Back to search

Bifröst University

Hefur virk þátttaka framlínustarfsmanna og svigrúm til sjálfstæðrar ákvörðunartöku áhrif á starfsánægju?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar var að greina hvort finna mætti fylgni á milli starfsánægju og þess að starfsmenn upplifi sig hafa svigrúm til virkrar þátttöku, t.a.m. við markmiðasetningu þeirrar skipulagsheildar sem þeir starfa hjá og aðrar ákvarðanir sem teknar eru er varða starf þeirra með beinum hætti. Rannsókn þessari er ætlað varpa ljósi á þær staðreyndir sem settar eru fram í fræðum um starfsánægju og þá þætti sem helst skapa slíka upplifun starfsmanna. Rannsóknarspurningin var: Hefur virk þátttaka framlínustarfsmanna og svigrúm til sjálfstæðrar ákvörðunartöku áhrif á starfsánægju starfsmanna Símans og Vodafone? Við framkvæmd rannsóknarinnar var annars vegar notast við megindlega rannsóknaraðferð, þar sem lögð var spurningakönnun fyrir framlínustarfsmenn hjá Símanum og Vodafone á rafrænu formi. Hins vegar var notast við eigindlega rannsóknaraðferð, þar sem stuðst var við fyrirfram ákveðin viðtalsramma og voru tekin hálf opin viðtöl við stjórnendur hjá sömu skipulagsheildum. Markmið þess að tvinna saman þessar tvær rannsóknaraðferðir var að leggja mat á hversu vel upplifun starfsmanna endurspeglast í þeim fræðum sem stjórnendur Símans og Vodafone telja sig viðhafa. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að margir áhrifaþættir virkrar þátttöku höfðu bein áhrif á starfsánægju þátttakenda rannsóknarinnnar. Á meðal þeirra þátttakenda sem að töldu sig ánægða í starfi var mun hærra hlutfall en meðaltal heildarniðurstaðna sem að taldi sig vera í starfi sem að hentaði hæfni þeirra og áhugasviði. Þar að auki var hlutfall ánægðra talsvert hærra en meðaltal sem að töldu starf sitt; mikilvægt, krefjandi, fengu hvatningu í starfi, upplifðu möguleika á að vinna sig upp í starfi, höfðu áhrif á ákvarðanatöku vegna starfa sinna og höfðu svigrúm til sjálfstæðrar ákvarðanatöku.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórhildur Hafsteinsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40580
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40580

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórhildur Hafsteinsdóttir 1986-. Hefur virk þátttaka framlínustarfsmanna og svigrúm til sjálfstæðrar ákvörðunartöku áhrif á starfsánægju?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40580