Back to search

Bifröst University

Hlutaflokkar og meginreglan um jafnræði hluthafa

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni er leitast við að greina og lýsa hlutaflokkum, tilgangi þeirra, kostum og annmörkum ásamt því að fjalla sérstaklega um hvernig hlutaflokkar samræmist jafnræðisreglu félagaréttar. Munurinn milli hlutaflokka getur til að mynda falist í mismunandi rétti til að greiða atkvæði eða útgreiðslu arðs. Helstu kostir útgáfu hlutaflokka er að auka eigið fé og virði fyrirtækja án þess að eigendur eða stofnendur þess láti af stjórn þess eða deili völdum með fleiri hluthöfum. Álitaefnin eru hins vegar augljós, þ.e. hvernig samræmist það jafnræði hluthafa og reglum um minnihlutavernd þegar einn hlutur hefur minni rétt en annar? Hagmunir hluthafa sem eiga hlut með lakari réttindum en aðalhluthafar geta ýmist haft minni atkvæðisrétt eða jafnvel engan atkvæðisrétt. Mögulega kaupir viðkomandi hlut í fyrirtækinu vitandi að hluturinn hefur minni réttindi en arðsemissjónarmið eða önnur, s.s. samfélagsleg sjónarmið, vega þá upp á móti. Ráðandi hluthafar fyrirtækisins geta þá tekið ákvarðanir sem aðrir hluthafar kunna að vera mótfallnir eða jafnvel ganga gegn hagsmunum þeirra. Meginniðurstöður eru þær að í raun njóta hlutir jafnræðis í sínum eigin flokkum en ekki á milli hlutaflokka. Margt bendir til þess að þetta fyrirkomulag, þ.e. að skipta hlutum félaga upp í mismunandi hluti, sé að færast í aukana og því er ljóst að umræðu um þetta fyrirkomulag er þörf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arnar Stefánsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40579
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40579

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnar Stefánsson 1982-. Hlutaflokkar og meginreglan um jafnræði hluthafa. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40579