Back to search

Bifröst University

Nýliðun í garðyrkju

Abstract

dc:description.abstract

Hefur nýliðunarstuðningur í landbúnaði náð markmiðum sínum til að auka nýliðun í garðyrkju? Tekin voru eigindleg viðtöl við nýja garðyrkjubændur er flokkast sem nýliðar samkvæmt rammasamningi sem stjórnvöld gerðu við Bændasamtök Íslands 2016. Skoðuð er sögulega þróun landbúnaðar á Íslandi í gegnum aldirnar og fram að nýjustu búvörusamningunum 2016, þar sem í fyrsta sinn var boðið upp á nýliðunarstuðning fyrir garðyrkju. Meðalaldur garðyrkjubænda hefur í gegnum tíðina verið sá hæsti á meðal búgreina og því nauðsynlegt að efla nýliðun. Enginn nýliðanna sagðist hafa gerst nýliði vegna nýliðunarstuðningsins, en þó hafi hann verið eins og kærkomin búbót ef hann fékkst. Hann sé bæði of óáreiðanlegur til að hægt sé að reikna með honum sem fjármögnun og einnig skorti að allar upplýsingar um stigagjöfina og umsóknarferlið séu aðgengilegar á einum og sama staðnum. Þá hafi meðalaldur bænda hækkað á þeim tíma síðan nýliðunarstuðningur fyrir allar búgreinar var samþykktur árið 2016. Þó skekkir það myndina að fjöldi lögaðila hefur aukist í þeim útreikningi og engar upplýsingar liggja fyrir um aldur raunverulegra eigenda þeirra félaga. Ljóst er að ef markmiðið er að auka nýliðun með nýliðunarstuðningi þarf hann að verða markvissari en hann er í dag.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Óli Björn Finnsson 1989-
  • Jón Ingi Sigvaldason 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40568
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40568

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Óli Björn Finnsson 1989-; Jón Ingi Sigvaldason 1972-. Nýliðun í garðyrkju. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40568