Back to search

Bifröst University

Hver eru áhrif og ávinningur CRM hugmyndafræðinnar á viðskiptavini Símans, Vodafone, Nova og Hringdu.

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er reynt að svara hver séu áhrif og ávinningur stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla (e. customer relationship management) (CRM) viðskiptavina Símans, Vodafone, Nova og Hringdu. Gerð er grein fyrir hugmyndafræðinni til þess að nálgast hver upplifun viðskiptavina er í samhengi við CRM. Markmið CRM er að byggja upp langtímasamband þar sem aðaláherslan er að uppfylla þarfir og væntingar lykilviðskiptavina. Nálgun viðfangsefnisins er byggð á kenningum, rannsóknum og fræðiritum ásamt athugun á samskiptaleiðum fyrirtækjanna. Megindlegri aðferð var beitt við rannsóknina og var spurningakönnun hönnuð til þess að meta frammistöðu fyrirtækjanna á CRM út frá áhrifum og ávinningi viðskiptavina. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að meirihluti þátttakenda finnur fyrir áhrifum af CRM. Þátttakendum var skipt niður eftir fyrirtækjum og í lokin var gerður samanburður á milli Símans, Vodafone, Nova og Hringdu. Úrvinnsla og uppsetning niðurstaða var gerð að fyrirmynd annarra rannsókna þar sem svör þátttakenda gefa viðskiptafyrirtæki þeirra einkunn, sem getur leiðbeint fyrirtæki til þess að bregðast við með hnitmiðuðum aðgerðum til að hámarka nýtingu og ná markmiðum CRM.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Henrik Chadwick Hlynsson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40561
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40561

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Henrik Chadwick Hlynsson 1990-. Hver eru áhrif og ávinningur CRM hugmyndafræðinnar á viðskiptavini Símans, Vodafone, Nova og Hringdu.. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40561