Back to search

Bifröst University

Er stytting vinnutímans fyrir alla? Stjórnendur hjá hinu opinbera og stytting vinnutímans

Abstract

dc:description.abstract

Jafnvægi vinnu og einkalífs er hugtak sem komið hefur fram á síðari árum sem einn liður í vinnuvernd starfsmanna. Með hugtakinu er verið að vísa til þess að einstaklingar gegna mismunandi hlutverkum á lífsleiðinni og þurfa ákveðið rými til að skipta um hlutverk svo álag í einu hlutverki hafi ekki áhrif á líðan í öðru. Stytting vinnutímans er ein leið til að koma til móts við þessar þarfir og hafa mörg stéttarfélög á Íslandi samið um 36 stunda vinnuviku. Markmiðið rannsóknarinnar er að skoða stöðu stjórnenda í þessum breytingum og hvaða áhrif stytting vinutímans hefur á verkefni stjórnandans. Gerð var eigindleg viðtalsrannsókn þar sem rætt var við tólf stjórnendur hjá opinberum stofnunum. Í rannsókninni var leitast við skilja upplifun stjórnenda af verkefnum sínum, hvers eðlis þau eru, hvernig stytting vinnutímans samrýmist þeim og hvort að stjórnendur upplifi aukið álag vegna styttingar vinnutímans. Niðurstöðurnar sýna að verkefni stjórnandans eru bæði fjölbreytt, krefjandi og oft á tíðum tilviljanakennd þar sem stjórnendur eru í stöðugum samskiptum við starfsmenn sína yfir vinnudaginn og í stakk búnir til að bregðast við hvers konar verkefnum sem upp koma. Stjórnendur upplifa aukin sveigjanleika til að sinna störfum sínum og flestir hafa á einhvern hátt breytt vinnutíma sínum þannig að markmiðið með vinnutímastyttingunni nái fram að ganga. Þeir upplifa ekki aukið álag þar sem þeir hafa yfir að búa ýmsum björgum sem hjálpa þeim að takast á við starfið í dagsins önn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Elísabet Sæmundsdóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40556
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40556

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Elísabet Sæmundsdóttir 1966-. Er stytting vinnutímans fyrir alla? Stjórnendur hjá hinu opinbera og stytting vinnutímans. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40556