Bifröst University
Fyrirboðar kulnunar : hvernig upplifa stjórnendur og starfsmenn aðdraganda kulnunar?
Abstract
dc:description.abstractRannsóknir hafa sýnt fram á tengsl milli vinnuumhverfis og kulnunar. Allt bendir til þess að tilfellum kulnunar fari fjölgandi og aðsókn í starfsendurhæfingu er stöðugt að aukast. Það eru því skýr merki um að þörf sé á fyrirbyggjandi aðgerðum á vinnustað til að sporna við þessari þróun. Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í hvernig stjórnendur og starfsmenn upplifa aðdraganda kulnunar. Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð og tekin voru viðtöl við sex stjórnendur og sex starfsmenn. Markmiðið var að finna samhljóm eða misræmi hjá þessum hópum sem gæti gefið innsýn í upplifun þeirra af aðdraganda kulnunar og hugsanlega koma auga á helstu fyrirboða kulnunar í starfi. Niðurstöðurnar sýna að stjórnendur og stafsmenn hafa ólíka upplifun af aðdraganda kulnunar. Í ljós kom að þörf er á vitundarvakningu um kulnun og viðhorfsbreytingu á hvað teljist vera dugnaður í íslenskri fyrirtækjamenningu. Mikilvægt er að stjórnendur hafi svigrúm og úrræði til að sinna undirmönnum sínum, sér í lagi þegar breytingar eiga sér stað í fyrirtækinu. Höfundur telur að rannsóknin sýni að kulnun starfsmanna sé samspil margra þátta. Einnig telur höfundur að rannsóknin varpi ljósi á óöryggi stjórnenda og starfsmanna gagnvart heilkenninu kulnun þar sem ekki virðist vera ljóst hver beri ábyrgð á jafnvægi milli vinnu og einkalífs á vinnustaðnum. Skipulagheildir hafa því hag af því að stuðla að fyrirtækjamenningu sem byggir á gagnkvæmu trausti stjórnenda og starfsmanna. Höfundur vonar að hagnýtt gildi rannsóknarinnar sé að veita betri innsýn í fyrirtækjamenningu á Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga María Albertsdóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40555
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40555