Abstract
dc:description.abstractNeysla á orkudrykkjum hefur farið vaxandi undanfarin ár á Íslandi. Rekja má þá þróun fyrst og fremst til neyslu á orkudrykkjum undir merkjum NOCCO og Collab þar sem ný tækifæri hafa skapast. NOCCO og Collab eru vinsælustu orkudrykkirnir í dag. Core heildsalan framleiðir NOCCO drykkina en Ölgerðin framleiðir Collab. Talið er að neysla orkudrykkja meðal framhaldsskólanema hafi aukist um 150% á síðastliðnum tveimur árum. Í þessari ritgerð verður fjallað nánar um orkudrykkjamarkaðinn á Íslandi og þróun hans, með tilliti til merkjanna NOCCO og Collab. Rakið verður hvernig þessir drykkir komu á markaðinn hérlendis og hvað gerir þá svona vinsæla. Næst verður gerð grein fyrir kaupferlinu hjá neytandanum, notkun markaðsfærslu til að ná sem bestum árangri í markaðssetningu, auglýsingum og áhrif sýnileika í búðum á þessa þætti. Gerð var markaðsrannsókn í þeim tilgangi að kanna hverjir væru neytendur orkudrykkjanna NOCCO og Collab, hvort það væri munur á þeim og hvað einkennir þá. Greint verður frá þeim niðurstöðum markaðskönnunarinnar. Þá verður litið til þess hvort sérstaða hvors merkis um sig hafi náð til neytenda. Í rannsókninni tóku 528 einstaklingar þátt og svöruðu þeir rafrænum spurningalista. Niðurstöðurnar gefa til kynna að neytendur NOCCO og Collab séu ekki ólíkir og noti flestir vöruna í sama tilgangi; til að fá auka orku. Þó nær NOCCO meira til yngri neytenda en Collab nær til breiðari markhóps. Niðurstöðurnar sýna einnig að neytendur kaupa Collab í auknum mæli vegna þeirrar sérstöðu að drykkirnir innihalda kollagen. Sérstaða NOCCO felst í því að þeir drykkir innihalda amínósýrur en þessi þáttur hefur ekki áhrif á kauphegðun neytenda á sama hátt, þar sem kaupendur velja flestir NOCCO eingöngu vegna bragðsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Sylvía Erla Melsted 1996-
- Róbert Freyr Samaniego 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40548
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40548