Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið rannsóknarinnar er að skoða stöðu sjálfbærnismála í ferðaþjónustu á Íslandi. Við stöndum á tímamótum í umgengni við náttúruna og hvernig við getum notið hennar á sjálfbæran hátt. Mikil umræða hefur verið upp á síðkastið um loftslagsmál og aukna sjálfbærni og samfélagsábyrgð í öllum atvinnugeirum og þar með talið í ferðaþjónustu. Í þessari rannsókn verður kannað hvar við stöndum í sjálfbærni í ferðaþjónustu á Íslandi í dag. Markmið rannsóknarinnar er að reyna finna svör við hver eru lykilatriði til árangurs svo ferðaþjónustuaðilar tileinki sér sjálfbærni í sínum störfum og einnig hverjar helstu áskoranir standa í veg fyrir þeirri þróun. Heimsfaraldurinn Covid-19 setti að auki sitt mark á þessa þróun sem og ferðaþjónustunna í heild sinni en kannað var einnig þau mögulegu áhrif. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að að staða ferðaþjónustunnar í sjálfbærni sé ekki nógu góð og lykilatriði til árangurs sé að efla fræðslu um sjálfbærni og hvernig megi innleiða hana betur og framkvæma, koma með efnahagslegan hvata sem styður við þessa breytingu sem og auka aðhald til þess að ferðaþjónustuaðilar standi sig betur í þessum málefnum. Á sama tíma má lýta sem helstu áskorun að efla skilning, breyta hugarfari gagnvart sjálfbærni sem og heimsfaraldur setti sitt strik í reikninginn í átt að þessari sjálfbærri þróun ferðaþjónustu Íslands. Lykilorð: Ferðaþjónustan á Íslandi, sjálfbærni, lykilatriði til árangurs, helstu áskoranir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Harpa Rún Hilmarsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40534
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40534