Back to search

Bifröst University

Fjármálafyrirtæki með sjálfbærnistefnu : ávinningur og hvati

Abstract

dc:description.abstract

Umræðan um loftslagsmál og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja hefur verið áberandi á undanförnum árum og er sífellt að aukast. Tilgangurinn með rannsókn þessari var að skoða mögulegan ávinning fjármálafyrirtækja af því að vera með sjálfbærnistefnu og hvort og hvaða hag fjármálafyrirtæki hafa af því. Einnig að varpa ljósi á þá hvata sem liggja að baki þess að fjármálafyrirtæki innleiða sjálfbærnistefnu. Um eigindlega rannsókn var að ræða og voru þátttakendur fimm talsins. Tekin voru viðtöl við einstaklinga sem starfa hjá fjármálafyrirtækjum sem eiga það öll sameiginlegt að hafa innleitt sjálfbærnistefnu. Allir þátttakendur höfðu reynslu af sjálfbærnimálaflokknum í gegnum störf sín. Viðtölin voru þemagreind og fjallað var um niðurstöður þeirra í samhengi við fræðilega umfjöllun. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mögulegur ávinningur fyrir fjármálafyrirtæki að vera með sjálfbærnistefnu sé margvíslegur. Benda niðurstöður m.a. til þess að fjármálafyrirtæki með sjálfbærnistefnu séu betur undirbúin fyrir framtíðina og yfirvofandi regluverk heldur en þau sem ekki hafa innleitt sjálfbærnistefnu. Það veitir þeim samkeppnisforskot og aðgreinir þau frá samkeppnisaðilum. Einnig benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að það sé fjárhagslegur ávinningur fyrir fjármálafyrirtæki að vera með sjálfbærnistefnu og að því fylgi hagræðing í rekstri. Við stefnumótun fyrirtækja ættu stjórnendur því að íhuga innleiðingu slíkrar stefnu. Rannsóknin getur hugsanlega nýst öðrum fjármálafyrirtækjum við ákvarðanatöku um innleiðingu sjálfbærnistefnu. Einnig getur hún veitt innsýn inn í innleiðingu slíkrar stefnu og hvaða þættir skipta þar máli. Efnisorð: Ávinningur, fjármálafyrirtæki, hvati, samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja og sjálfbærni

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erna Guðmundsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40531
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40531

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erna Guðmundsdóttir 1977-. Fjármálafyrirtæki með sjálfbærnistefnu : ávinningur og hvati. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40531