Bifröst University
Stafræn umbreyting þjónustu opinberra stofnana : hverjar eru helstu áskoranir og lykilatriði árangurs stafrænnar umbreytingar í þjónustu opinberra stofnana?
Abstract
dc:description.abstractStafræn umbreyting er hugtak sem er mikið til umræðu þegar kemur að því að búa þjóðfélagið undir þær breytingar sem krafist er vegna innleiðingar fjórðu iðnbyltingarinnar í alla anga samfélagsins. Það er mikilvægt að öll fyrirtæki sem og opinberar stofnanir aðlagi sig að þeim breyttu tímum sem framundan eru, ekki síst til að dragast ekki aftur úr í samkeppninni. Höfundar spurðu því rannsóknarspurningarinnar: „Hverjar eru helstu áskoranir og lykilatriði árangurs stafrænnar umbreytingar í þjónustu opinberra stofnana?“. Höfundar ákváðu að rannsaka stafræna umbreytingu út frá tveimur sjónarhornum. Annars vegar út frá sjónarhorni þjónustustjórnunar og hins vegar út frá sjónarhorni breytingastjórnunar. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hverjar eru helstu áskoranirnar sem opinberar stofnanir þurfa að glíma við á meðan ferli stafrænnar umbreytingar gengur yfir. Annað markmiðið er að komast að því hver eru lykilatriði árangurs þegar kemur að stafrænni umbreytingu. Höfundar beittu eigindlegri aðferðafræði við rannsóknina. Tekin voru tíu viðtöl við stjórnendur í fimm opinberum stofnunum. Þau voru síðan afrituð og greind í þemu. Niðurstöður sýna þá þætti sem viðmælendur mátu sem áskoranir í þjónustustjórnun sem og í breytingastjórnun. Hvað áskoranir varðar eru þættirnir sem m.a. þarf að glíma við kostnað, lagaheimildir, flókin starfsemi, tækni og of fátt starfsfólk. Þegar kemur að lykilatriðum árangurs voru það m.a. þættir eins og að einblína á bætta þjónustu, að kynna breytingar vel fyrir starfsfólki, að leita sér utanaðkomandi aðstoðar, að starfsmenn sýni samstöðu með breytingunum og að fá starfsfólkið með í vinnuna við breytingarnar. Þetta eru þættir sem stjórnendur í opinberum stofnunum ættu að líta til þegar þeir vilja komast framhjá hindrunum við stafræna umbreytingu stofnana sinna. Lykilorð: Stafræn umbreyting, breytingastjórnun, þjónustustjórnun, lykilatriði árangurs, áskoranir
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Anna María Svansdóttir 1981-
- Tryggvi Már Meldal 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40527
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40527