Bifröst University
Hverjir teljast sem fjölskyldu- og trúnaðaraðilar í kynferðisbrotum gegn börnum í skilningi 200. og 201. gr. alm. hgl. nr. 19/1940?
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um kynferðisbrot gegn börnum af hálfu fjölskyldu- og trúnaðaraðila. Dómar voru skoðaðir til að sjá hvernig dómstólar túlka hverjir falla undir þessi tvö hugtök. Megin markmiðið var að sjá hvort línan væri skýr eða hvort óskýrt væri hvernig dómstólar meta tengslin á milli geranda og brotaþola. Fjallað var um helstu hugtök tengd kynferðisbrotum ásamt því að skoða þróun almennu hegningarlaganna nr. 19/1940. Síðan voru 200. og 201. gr. almennu hegningarlaganna skýrð í sér kafla. Fjallað var um tuttugu og fimm dóma, bæði Landsréttardóma og Hæstaréttardóma frá árinu 2010-2021 og voru þeir allir reifaðir út frá 200. og 201. gr. hegningarlaganna. Vegna lagabreytinga sem urðu árið 2013 þá voru einnig reifaðir nokkrir nýrri dómar til að sjá hvernig dómstólar skilgreina tengsl milli geranda og brotaþola. Í nýju dómunum voru um þrjár aðrar lagagreinar að ræða og fjallað var stuttlega um þær. Niðurstöður sýndu fram á að lagabreytingarnar sem gerðar voru árið 2013 voru ekki vel heppnaðar. Skýr lína var á túlkun dómstóla á 200. gr. en ekki er hægt að segja það sama um túlkun varðandi 201. gr. Þar sem dómstólar notast við þrjár aðrar lagagreinar til að skilgreina tengsl geranda við brotaþola yngri en 15 ára var ekki skýrt við hvaða tengsl hver og ein grein fellur undir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Valdís Ósk Óladóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40522
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40522