Back to search

Bifröst University

Hvernig er hægt að bæta réttarstöðu brotaþola í kynferðisbrotamálum?

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um málaflokkinn kynferðisbrot út frá skilgreiningum, tölfræði, rannsóknum og löggjöf, sem og rétt brotaþola í réttarvörslukerfinu. Unnið er út frá rannsóknarspurningunnni Hvernig er hægt að bæta réttarstöðu brotaþola í kynferðisbrotamálum? Skoðað er hvernig réttarstöðu brotaþola er háttað skv. íslenskri löggjöf og hvaða skuldbindingar hvíla á Íslandi skv. þjóðaréttarsamningum. Níu konur töldu Íslenska ríkið hafa brotið á réttindum sínum við meðferð máls þeirra, og lögðu fram kæru til mannréttindadómstóls Evrópu. Voru við rannsókn þessa tekin viðtöl við tvo af brotaþolum þeirra mála þar sem þær ræddu meint brot ríkisins á réttindum sínum, afleiðingar þess og þær breytingar sem þær vilja sjá á ferlum og vinnubrögðum lögreglu og ákæruvalds þegar kynferðisbrot og annað ofbeldi er rannsakað og kært. Brotaþolar sem verða fyrir kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi eða áreitni þurfa á sérstakri vernd að halda innan réttarkerfisins, og eru konur af erlendum uppruna og börn í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Helst er í ritgerðinni fjallað um þá vernd og réttarúrræði sem brotaþolum kynferðisbrotamála býðst, s.s. réttargæsla, túlkaþjónusta og réttarbætur. Fjallað er um að víkka þurfi heimild til réttargæslu og tryggja að réttur fólks falli ekki niður við klofning máls, aukna túlkaþjónustu að því hvað varðar að fá aðgang að gögnum máls síns á öðru tungumáli en Íslensku og hvort leiðbeina þurfi brotaþolum betur um rétt sinn til bóta, þ.e. að leiðbeiningarskyldu sé sinnt við að kynna brotaþolum rétt sinn til bóta ef mál er látið niður falla. Einnig er fjallað um þá stöðu brotaþola að eiga ekki aðild að máli sínu og hvort lögreglu og ákæruvaldi sé heimilt að fella mál niður í málum sem sönnunargögn liggja fyrir í, og svipta brotaþola þar með rétti til sönnunarfærslu fyrir dómi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Þóra Jónsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40518
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40518

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Þóra Jónsdóttir 1981-. Hvernig er hægt að bæta réttarstöðu brotaþola í kynferðisbrotamálum?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40518