Back to search

Bifröst University

Lýðræðislegar áskoranir á tímum heimsfaraldurs

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð skoða ég í víðu samhengi hvernig áhrif heimsfaraldurinn Covid-19 hefur á stöðu lýðræðis og mannréttinda. Heimurinn fer minnkandi vegna alþjóðavæðingar og við erum öll þátttakendur í þessum atburð, líf milljarða manna hefur tekið gríðarlegum breytingum á stuttum tíma og ekkert lát virðist vera á innleiðingu nýrra laga og reglugerða sem skerða borgaraleg réttindi almennings. Tilgáta höfundar er sú að þróunin sem er að eiga sér stað sé mikið áhyggjuefni fyrir framtíð lýðræðis og mannréttinda og að verið sé að ganga lengra í valdbeitingu en þörf er á til verndar lífi og heilsu almennings. Aukið eftirlit með borgurum í formi rafrænna Covid „heilsupassa“ og flokkun og útilokun hópa á grundvelli bólusetninga er ekki síður áhyggjuefni þegar kemur að mannréttindum. Rannsóknarspurningin sem leitast verður við að svara er: Hafa skerðingar á athafnafrelsi fólks í sóttvarnarskyni brotið gegn mannréttindum? Ástandið verður greint út frá kenningum og hugtökum félagsvísinda með áherslu á þær lýðræðislegu og siðferðilegu áskoranir sem heimurinn stendur frammi fyrir þegar kemur að mannréttindum á þessum skrítnu tímum. Við gagnaöflun og greiningu verður stuðst við frumheimildir og vísindagreinar tengdar viðfangsefninu, ásamt umfjöllun úr fjölmiðlum. Raundæmi verða skoðuð og samtímaheimildir af netinu sem eru nauðsynlegar til að greina hvað er að gerast í samfélaginu á hverjum tímapunkti. Hugtökin sem unnið verður með eru meðal annars: Mannréttindi, lýðræði, siðferði, upplýsingastjórnun, upplýsingaóreyða, eftirlitssamfélag, og vald.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berta Finnbogadóttir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40504
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40504

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berta Finnbogadóttir 1971-. Lýðræðislegar áskoranir á tímum heimsfaraldurs. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40504