Back to search

Bifröst University

Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð : rekstrarleg áhrif af sameiningu

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni um sameiningu er skoðuð rekstrarþróun tveggja sveitarfélaga á sunnanverðum Vestfjörðum frá árinu 2003 til ársins 2008. Samanburður er gerður við rekstur annarra sveitarfélaga með sambærilega íbúatölu og þau sveitarfélög sem eru til skoðunar. Gerð er framtíðarsýn fyrir þessi tvö sveitarfélög, hvort fyrir sig, til ársins 2013 svo leiða megi fram getu þeirra til að standa á bak við lögbundin verkefni sín. Einnig er gerð framtíðarsýn fyrir þessi tvö sveitarfélög ef til sameiningar þeirra kæmi og hvort áætluð samlegðaráhrif af þeirri sameiningu gæfi þeim aukna getu til að sinna sínum verkefnum. Í verkefninu er farið yfir sameiningar almennt og með tilliti til sveitarfélaga og skoðað eftir hverju er verið að leita með sameiningum. Einnig er farið yfir verkefni sveitarfélaga fyrr á öldum, sögu þeirra og þróun frá þjóðveldisöld og hvaða lögbundnum verkefnum þeim er ætlað að sinna. Rekstrarframsetning þeirra er kynnt og hvaða tekjustofna þau hafa. Kynnt er saga sveitarfélaganna Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar ásamt íbúaþróun þeirra og atvinnusamsetningu í dag. Niðurstöður verkefnisins eru þær að til framtíðar er rekstrarlega erfitt fyrir sveitarfélögin að sinna verkefnum sínum og skuldbindingum nema með breyttum forsendum. Slíkar forsendur felast meðal annars í sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldór Karl Hermannsson 1958-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4043
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4043

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldór Karl Hermannsson 1958-. Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð : rekstrarleg áhrif af sameiningu. 2009. http://hdl.handle.net/1946/4043