Back to search

Bifröst University

Vélnám í markaðsstarfi, hver græðir á því?

Abstract

dc:description.abstract

Markaðssetning er allt í kringum okkur. Oftast er þetta ekki eitthvað sem við endilega tökum eftir, en hún er gjarnan ástæða fyrir því af hverju við kaupum þetta morgunkorn en ekki annað. Þar sem markaðssetning er allt í kringum okkur er oftast einhverjar ástæður fyrir því af hverju við veljum að kaupa það sem við kaupum þó þær séu stundum ómeðvitaðar. Ótal fyrirtæki nýta vélnám við sköpun á sínum vörum. Margar þeirra notum við öll á hverjum degi. Sem dæmi má nefna uppástungukerfin hjá Netflix, YouTube og Spotify. Leitarvélar eins og Google og Bing eða Facebook og Twitter. Í rannsókninni er skoðað hvernig netsölurisar nýta sér vélnám við markaðsetningu og gerð eigindleg rannsókn á nýtingu vélnáms við markaðssetningu á Íslandi. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni “Hver hefur hag af notkun vélnáms við markaðssetningu á Íslandi?”. Tekin voru viðtöl við þverfaglegan hóp sem hefur hver sinn vinkil á nýtingu vélnáms. Í kjölfariðlagt mat á nytsemi, hagkvæmni, innleiðingu og ágalla þess að nýta vélnám við markaðssetningu á Íslandi. Viðmælendur eru aðilar af íslenskum vinnumarkaði sem hver og einn hefur sína reynslu af vélnámi eða markaðsmálum, markaðsstjóri, sérfræðingur í markaðsmálum og hugbúnaði, verkfræðingur sem sérhæfir sig í vélnámi og framkvæmdastjóri fyrirtækis. Rannsóknin var eigindleg og voru tekin opin viðtöl við viðmælendur. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að allir geta haft hag af því að nýta sér vélnám við markaðssetningu en það getur þó verið flókin vegferð sem krefst fjárfestingar þjálfunar og undirbúnings. Árangur af nýtingu vélnáms byggir á markvissri gagnaöflun og að þekking sé til staðar innan fyrirtækja til þess að nýta þau gögn sem aflað er.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Axel Svavarsson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40099
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40099

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Axel Svavarsson 1991-. Vélnám í markaðsstarfi, hver græðir á því?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/40099