Bifröst University
Ráðningarumhverfi á íslenskum vinnumarkaði : að velja hæfasta einstaklinginn. Samanburður á ráðningarumhverfi opinbers og almenns vinnumarkaðar
Abstract
dc:description.abstractÁ Íslandi skortir heildstæða löggjöf um vinnurétt. Þó er að finna ýmis lög og reglur er gilda um efnið en vandmeðfarið er að vinna eftir reglunum þar sem þær er að finna á víð og dreif í lögunum. Íslenskur vinnumarkaður skiptist upp í tvo meginhluta; almennan vinnumarkað og opinberan vinnumarkað. Undir almennan vinnumarkað heyra einkahlutafélög, hlutafélög og sjálfseignarstofnanir en undir opinberan vinnumarkað falla stofnanir í eigu ríkis og sveitarfélaga. Megintilgangur ritgerðarinnar er að skoða muninn á ráðningarferli á almennum og opinberum vinnumarkaði og hvort reglur sem gilda um ráðningar á opinberum vinnumarkaði sníði stjórnendum á opinberum vinnumarkaði of þröngan stakk þegar kemur að ráðningum, jafnvel svo þeir geti ekki ráðið hæfasta umsækjandann. Stuðst verður við hina lagalegu aðferð og byggt á þeim réttarheimildum sem eiga við um efnið. Til glöggvunar verða einnig skoðaðir hæstaréttardómar, álit kærunefndar jafnréttismála, álit umboðsmanns Alþingis og félagsdómar. Helstu niðurstöður sýna að ráðningarumhverfið er mun frjálsara á almennum vinnumarkaði heldur en á þeim opinbera. Ráðningarferlið er byggt upp á svipaðan hátt á almennum og opinberum vinnumarkaði, en staðið er að ráðningarferlinu með ólíkum hætti þar sem opinberum vinnumarkaði eru settar þrengri skorður hvað það varðar með lögum og reglum sem gilda sérstaklega fyrir þann vinnumarkað. Má þar helst nefna lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, sveitarstjórnarlög nr. 138/2011 og stjórnsýslulög nr. 37/1993. Meginreglur stjórnsýsluréttar skipta einnig miklu máli við ráðningar á opinberum vinnumarkaði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39579
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39579