Back to search

Bifröst University

"Verk óðs manns" : mat á geðrænu sakhæfi með áherslu á matsgerðir dómkvaddra matsmanna

Abstract

dc:description.abstract

Óumdeilt er að hugtakið sakhæfi er lögfræðilegs eðlis hér á landi og að mat á sönnunargögnum fellur lögum samkvæmt í verkahring dómstóla, sbr. 109. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Í þessari ritgerð leitast höfundur við að varpa ljósi á hvernig mat á geðrænu sakhæfi er í framkvæmd hérlendis, þá samanborið við nágrannalönd okkar. Dómstólar styðjast oftar en ekki við matsgerðir dómkvaddra matsmanna þegar þeir leggja mat á sakhæfi sakbornings. Það virðist þó ekki vera nein algild regla á því hvenær dómstólar víkja matsgerð til hliðar og dæma þvert á móti niðurstöðum hennar. Það hefur orðið vart við ósamræmi í dómum hvað varðar vægi matsgerða þegar metið er geðrænt sakhæfi. Af dómaframkvæmd má þó ráða að dómstólar líti einkum til nokkurra atriða við mat á því hvort sakborningur hafi verið í því ástandi að vera alls ófær um að stjórna gjörðum sínum á verknaðarstundu, sbr. 15. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Höfundur leitast við að svara þeirri spurningu hvort þröng túlkun á 15. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 gæti vegið að réttlátri málsmeðferð þegar fyrir liggur mat dómkvaddra matsmanna, þá sér í lagi ef dómkvaddir matsmenn og yfirmatsmenn sammælast um mat á andlegu atgervi ákærða. Leiða má líkum að því að þegar verulegur vafi liggur fyrir um sakhæfi ber dómstólum í hvívetna að tryggja réttláta málsmeðferð og skýra allan vafa sakborningi í hag.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Soffía Adda A. Guðmundsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39562
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39562

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Soffía Adda A. Guðmundsdóttir 1994-. "Verk óðs manns" : mat á geðrænu sakhæfi með áherslu á matsgerðir dómkvaddra matsmanna. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39562