Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni var ákveðin undantekning á meginreglunni um samningsfrelsið skoðuð, n.t.t. samningsskylda Menntasjóðs námsmanna gagnvart tilteknum námsmönnum, um úthlutun námsláns. Jafnframt var rannsakaður réttarheimildarlegur grundvöllur kröfu að baki slíkrar samningsskyldu, einkum í ljósi mannréttinda sem njóti verndar 1. mgr. 76. gr. stjórnskipunarlaga nr. 33/1944 um stjórnarkrá lýðveldisins Íslands. Þannig var skoðað hvort lög nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna geti í reynd talist vera sett á grundvelli lagaáskilnaðar ofangreindrar stjórnskipunarreglu. Telja þótti námslána réttinn fela í sér jákvæð mannréttindi, þ.e. lágmarks framfærslurétt og komu þá til skoðunar reglur og dómaframkvæmd er skýrir takmörk slíkra réttinda. Viðfangsefnið var skoðað út frá grundvallar reglum samninga- og kröfuréttar, en einnig nokkrum af helstu reglum stjórnsýslu- og stjórnskipunarréttarins. Sérstaklega var skoðað hvort til staðar væri ósamræmi í löggjöfinni sem fjalli um ofangreindan lágmarksrétt og kom í ljós að 10.1 gr. auglýsingar nr. 360/2021 um úthlutunarreglur sjóðsins fyrir skólaárið 2020-2021 mælir fyrir um takmörk á rétti tiltekinna námsmanna til úthlutunar námsláns sem ekki fyndist viðhlítandi stoð fyrir í almennum lögum frá Alþingi. Þá voru færð fyrir því rök að stjórn sjóðsins fari í reynd með of víðtækar valdheimildir sem kynni að fela í sér brot gegn 2. gr stjórnskipunarlaga nr. 33/1944 um stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Með ritgerðinni voru loks færð rök fyrir því að sú aðferð löggjafans, að tryggja einkaaðilum lágmarksréttindi, m.a. fyrir tilstuðlan samningskyldu stjórnvalda, teldist varhugaverð sökum þess mikla vægi og gildis sem felst í meginreglunni um samningsfrelsið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bjarki Heiðar Hildarson 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39559
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39559