Abstract
dc:description.abstractHeimsfaraldur Covid-19 kom eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir allt samfélagið. Hlutverk leikskólastjóra var að takast á við þessa tíma, með öllum þeim áskorunum sem fylgja krísum. Markmiðið var skýrt, heilsa og vellíðan barna og starfsfólk var í forgrunni allan tímann. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á störfum leikskólastjóra á tímum heimsfaraldurs hér á landi svo vitað sé en fyrri rannsóknir um krísustjórnun gefa til að kynna að skýr sýn og öflug forysta séu mikilvægir þættir í krísum. Litið er á leikskóla sem eina af grunnstoðum samfélags og því mikilvægt að varpa ljósi á reynslu leikskólastjóra af stjórnun á tímum heimsfaraldurs. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna reynslu leikskólastjóra í starfi í fyrstu bylgju Covid-19 á Íslandi sem var frá 13. mars til 4. maí. Athugað var hvernig þeim tókst sem leiðtogum að takast á við erfiða tíma og hvaða áherslur og aðferðir þeir nýttu til þess að komast í gegnum tímabilið og hvernig þeir sem einstaklingar tókust á við það. Að auki var skoðað hvort greina mætti einhverja sameiginlega reynslu eða upplifun hjá leikskólastjórum sem gæti haft áhrif á framtíðarskipulag í leikskólum. Í rannsókninni komu fram þrjú meginþemu. Fyrsta þema fjallar um það álag sem varð á tímabilinu, annað þemað fjallar um samvinnu sem myndaðist á tímabilinu og þriðja þemað lýsir hvernig starfsfólk og skólasamfélagið valdefldist á tímabilinu. Niðurstöður gefa til kynna mikilvægi þess að hafa skýr markmið, skýra sýn og að gefa starfsfólki leikskóla hlutdeild í þeim verkefnum sem það á að takast á við, jafnframt nauðsyn þess að hlusta á og virða líðan og tilfinningar fólks og að styðja starfsfólk við að takast á við erfið og flókin verkefni. Niðurstöðurnar gefa einnig til kynna að ekki er hægt að leggja endalaust álag á fólk og að hlúa þurfi vel að öllum, ekki síst stjórnendum. Niðurstöðurnar gefa jafnframt vísbendingar um að áherslur og aðferðir þjónandi forystu og lærdómssamfélagsins séu árangursríkar til þess að leiða skólastarf á tímum álags og áfalla. Niðurstöður rannsóknarinnar geta verið framlag til þekkingar um árangursríkar áherslur í stjórnun á tímum heimsfaraldurs og geta nýst innan skóla sem og fyrir aðra sem takast á við óvæntar áskoranir og krísur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Gísladóttir 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37632
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37632