Bifröst University
"Þú átt að geta verið í 100% stöðu, mér finnst það bara mannréttindi.“: Áhrif þrískiptrar vaktavinnu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Upplifun og reynsla hjúkrunarfræðinga á Íslandi.
Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hver reynsla og upplifun hjúkrunarfræðinga á Íslandi í þrískiptri vaktavinnu er af jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Samkvæmt kenningum hefur ánægja heima fyrir áhrif á líðan og ánægju í vinnunni og öfugt. Of miklar kröfur í starfi valda árekstrum á milli vinnu og einkalífs á meðan sjálfsstjórn yfir starfi eykur jafnvægi. Gerð var viðtalsrannsókn sem náði til 13 hjúkrunarfræðinga úr öllum landshlutum Íslands. Niðurstöður rannsóknarinnar samræmast öðrum rannsóknarniðurstöðum um jafnvægi á milli vinnu og einkalífs hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar sem vinna eftir óreglulegri, þrískiptri vaktaskýrslu finna fyrir árekstrum þegar kemur að jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Áhrifin eru það mikil að aðeins örfáir hjúkrunarfræðingar á Íslandi treysta sér til að vera í 100% starfshlutfalli. Upplifun hjúkrunarfræðinga af álagi og kröfum og tengslum þeirra við jafnvægi á milli vinnu og einkalífs er ólík eftir því hvort starfað er á litlum sjúkrahúsum á landsbyggðinni eða á stærri sérhæfðu sjúkrahúsunum. Á litlu sjúkrahúsunum eru hjúkrunarfræðingar mikið einir á meðan hjúkrunarfræðingar á stærri sjúkrahúsum eru að sinna veikari skjólstæðingum. Hjúkrunarfræðingum reynist erfitt að finna jafnvægi en segja það þó hægt með góðu skipulagi. Allar upplifa þær töluvert álag í starfi, þreytu, kröfur og ábyrgð. Viðmælendur voru sammála um að stytting vinnuvikunnar væri af hinu góða þrátt fyrir töluverða óánægju með kjarasamninga hjúkrunarfræðinga. Hugtök: Jafnvægi milli vinnu og einkalífs, vaktavinna, hjúkrunarfræðingar, álag, kröfur, stytting vinnuvikunnar
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aldey Unnar Traustadóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37630
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37630