Back to search

Bifröst University

Er arðbært að framkvæma liðskiptaaðgerðir á einkarekinni skurðstofu á Íslandi : fræðileg umfjöllun og viðskiptaáætlun

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessa verkefnis er að skoða hvort hefja eigi liðskiptaaðgerðir í einkarekstri hér á landi og lagt er upp með spurninguna: „Er arðbært að framkvæma liðskiptaaðgerðir á einka-rekinni skurðstofu á Íslandi?“ Verkefnið er tvíþætt, annars vegar er fræðileg umfjöllun og hins vegar viðskiptaáætlun. Fræðilega umfjöllunin er um einkarekstur, þar sem m.a. er fjallað um þann meginn mun sem er á einkarekstri og ríkisrekstri, hverju skuli huga að og af hverju ætti að starfrækja einkareknar heilbrigðisþjónustur. Fjallað er um útgjöld til heilbrigðsmála á Íslandi og Norðurlöndunum og stöðu einkareksturs í þessum löndum með áherslu á liðskiptaaðgerðir. Sérstaklega er fjallað um einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni hér á landi og ítarleg umfjöllun er um liðskiptaaðgerðir, fjölda aðgerða, biðlista og þann kostnað sem fylgir slíkri aðgerð eins og þær eru framkvæmdar í dag, þ.e. eingöngu á ríkisreknu sjúkrahúsi. Viðskiptaáætlunin er gerð til að meta hvort hugmyndin um að framkvæma liðskiptaaðgerðir á einkarekinni skurðstofu sé vænleg til árangurs eða ekki. Hún byggir á því að útfæra rekstur einkarekinnar skurðstofu sem starfrækt er í dag og auka við starfsemina með því að framkvæma liðskiptaaðgerðir. Skurðstofan sem um ræðir gerir eingöngu aðgerðir sem ekki krefjast innlagnar yfir nótt en það gera hins vegar liðskiptaaðgerðir. Áætlunin gengur út á að útfæra reksturinn yfir í það að hafa legudeild sem opnar um leið og aðgerðir hefjast og væri þá komin vísir að einkareknu sjúkrahúsi, eina sinnar tegundar hér á landi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Eyþórsdóttir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3671
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3671

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Eyþórsdóttir 1971-. Er arðbært að framkvæma liðskiptaaðgerðir á einkarekinni skurðstofu á Íslandi : fræðileg umfjöllun og viðskiptaáætlun. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3671