Back to search

Bifröst University

Upplýsingaskylda útgefenda skráðra hlutabréfa

Abstract

dc:description.abstract

Á Íslandi er saga viðskipta með hlutabréf á skipulegum verðbréfamarkaði stutt. Miklar og örar breytingar hafa einkennt verðbréfamarkaðslöggjöf á Íslandi, ekki síst vegna aðildar Íslands að samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði. Margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að fyrirtæki leita eftir að skrá hlutabréf sín á skipulegan verðbréfamarkað. Oftar en ekki er tilgangurinn sá að afla fjár í einum eða öðrum tilgangi. Samhliða og í kjölfar opinberrar skráningar fylgir skylda til að upplýsa markaðinn um ýmsa þætti í starfsemi félags. Á útgefendum hvílir rík skylda samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum og reglum NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin á Íslandi). Skipta má reglum um upplýsingaskyldu útgefenda skráðra hlutabréfa í eftirfarandi fjóra flokka: 1. Regluleg upplýsingagjöf. 2. Atvikabundin upplýsingagjöf. 3. Innherjaupplýsingar. 4. Flöggun. Um upplýsingaskyldu útgefenda skráðra hlutabréfa hefur lítið verið fjallað í skrifum íslenskra fræðimanna. Er hér reynt að bæta úr því. Farið er almennt yfir gildandi reglur og leitast við að skýra þær með tilliti til ákvarðana Fjármálaeftirlitsins og Kauphallarinnar auk þess sem stuðst er við ýmis lögskýringargögn og aðrar heimildir þar sem við á.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Óli Hauksson 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3651
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3651

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Óli Hauksson 1972-. Upplýsingaskylda útgefenda skráðra hlutabréfa. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3651