Abstract
dc:description.abstractÞegar markaðssetja á heilan landshluta er nauðsynlegt að gæta þess að þau skilaboð sem sett eru fram um landshlutann fari saman við getu landshlutans til að standa undir skilaboðunum. Ferðaþjónusta spilar stórt hlutverk í atvinnulífi og samfélaginu á Vesturlandi og því er mikilvægt að um markaðssetningu ferðaþjónustunnar sé mótuð stefna sem þjónar öllum hagaðilum svo atvinnugreining geti blómstrað. Markmið rannsóknarinnar sem hér er greint frá var að setja fram markaðslega stefnu fyrir Vesturland sem Markaðsstofa Vesturlands, stoðþjónusta ferðaþjónustunnar á Vesturlandi og allir ferðaþjónar sem þar starfa á svæðinu geta nýtt sér. Við vinnslu ritgerðarinnar var notað við bæði frumrannsóknir og afleiddar rannsóknir. Við frumrannsókn var eigindlegum aðferðum beitt til þess að ná fram dýpri skilningi á ferðaþjónustunni á Vesturlandi í rauntíma. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru svæðin fjögur á Vesturlandi eru öll stödd á mismunandi stöðum í Líftímakúrfu Butlers. Ólíkar aðstæður kalla á ólík skilaboðin sem taka mið af stöðu hvers svæðis svo væntingar markhópanna mæti upplifun. Svæðin fjögur á Vesturlandi eiga það þó öll sameiginlegt að vera rík af fallegum náttúrufyrirbærum, menningararfi og viðhorf heimamanna í garð ferðamanna er alla jafna jákvætt. Því leggur höfundur til að staðfærsla áfangastaðarins Vesturland miðið að markhópum sem leitast við einstakar upplifanir, unnendur náttúrunnar og ferðamenn sem kjósa að ferðast utan háanna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Thelma Dögg Harðardóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36504
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36504