Bifröst University
Sjálfsafgreiðslukassar : viðhorf neytenda til sjálfsafgreiðslukassa og áhrif þeirra á upplifun þjónustu
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar rannsóknar snýr að sjálfsafgreiðslukössum í íslenskum matvöruverslunum, innleiðingu þeirra og áhrifum á neytendur. Rannsakað var hvert viðhorf íslenskra neytenda er til sjálfsafgreiðslukassa í íslenskum matvöruverslunum og niðurstöður bornar saman við fræðin og frumheimildir. Rannsóknin skilgreinist sem blönduð, þar sem um ræðir bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Spurningakönnun var lögð fyrir íslenska neytendur ásamt því að tekið var viðtal við forsvarsmann matvöruverslunarkeðju sem sá um innleiðingu sjálfsafgreiðslulausna í verslunum þeirra. Rannsóknarspurningarnar sem leitast var eftir að svara voru eftirfarandi: Hvert er viðhorf neytenda til sjálfsafgreiðslukassa í matvöruverslunum? Hvaða þættir stuðla að jákvæðri upplifun neytenda á sjálfsafgreiðslukerfum? Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar tekur fyrir fræðagrunn sem tengist beint úrvinnslu rannsóknar og niðurstaðna. Í honum má finna umfjöllun um þjónustu, einkenni þjónustu, stafrænar lausnir, vegferð neytenda og upplýsingar um matvöruverslanir á Íslandi og markaðsumhverfi þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar eru settar fram með þemagreiningu á rannsóknarviðtali, myndrænni aðferð og lýsandi tölfræði. Helstu niðurstöður eru þær að viðhorf íslenskra neytenda til sjálfsafgreiðslukassa er að mestu leyti hlutlaust, en ef neytandi hefur skoðun er hún annaðhvort mjög jákvæð eða mjög neikvæð. Meirihluti neytenda þykir það hafa jákvæð áhrif á upplifun sína ef matvöruverslanir bjóða upp á sjálfsafgreiðslulausn, með sýnilegum starfsmanni og því vali að geta farið á þjónustukassa frekar en að nota sjálfsafgreiðslu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gísli Gamm 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36493
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36493