Bifröst University
Lækningatengd ferðaþjónusta á Íslandi : óskhyggja eða raunverulegur möguleiki?
Abstract
dc:description.abstractRannókn þessi er framkvæmd með það fyrir augum að skoða möguleika Íslands til þátttöku í lækningatengdri ferðaþjónustu á samkeppnisgrundvelli. Rannsóknin var því fyrst og fremst megindleg. Spurningakönnunin var framkvæmd meðal skurðlækna og svæfingalækna og önnur meðal ferðamanna á leið úr Bláa Lóninu. Gögnin voru greind og af þeim dregnar niðurstöður um samkeppnisstöðu Íslands á þessum markaði. Lækningatengd ferðaþjónusta getur orðið mjög skilvirkt og gott úrræði fyrir stjórnvöld, lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk til þess að afla gjaldeyris, þjálfa heilbrigðisstarfsfólk og auka virðisauka af ferðamönnum. Auk þess væri hægt að minnka spekileka úr landi og nýta bjargir betur og mannauð í heilbrigðisþjónustu og ferðaþjónustu í kjölfar efnahagshruns á Íslandi. Ísland á mikinn mannauð í háu menntunarstigi þjóðarinnar og tækifæri gæti gefist nú eftir fall gjaldmiðilsins til þess að ná samkeppnisforskoti inn á þennan markað. Ísland getur nýtt óvenju mikinn mannauð í hagfræði og viðskiptafræði saman með heilbrigðisfræði og ferðamennsku í þeirri viðleitni að fá sem bestu útkomu og notað til þess sérstöðu menningarinnar sem er eyjamenning. Rannsóknir sýna að hver ferðamaður í lækningatengdri ferðaþjónustu er á við sjö venjulega ferðamenn. Til þess að vel gangi að markaðssetja land í þessari þjónustugrein þarf það að vera samkeppnishæft í verði, gæðum og mannauði. Þróun lækningatengdrar ferðaþjónustu hefur verið á þá leið að ferðamenn flæða frá þróuðum löndum og nýta sér úrræði vanþróaðra ríkja. Þegnar vanþróaðra ríkja hafa ekki efni á þjónustunni í sama mæli og þegnar þróaðra ríkja. Mikið hefur verið rætt um að ekki sé siðlegt að íbúar ríkra landa komi og taki úrræði frá íbúum fátækra landa. Annað viðvarandi vandamál í lækningatengdri ferðaþjónustu er að samræmd lagaúrræði skortir til verndar neytandanum og í sumum löndum er beinlínis bannað að leita réttar síns eftir mistök í framkvæmd læknisþjónustu. Ísland hefur sérstöðu að þessu leiti því það hefur öfluga lagavörn fyrir neytendur heilbrigðisþjónustu og mikið gæðaeftirlit með heilbrigðisfagfólki. Þá hefur Ísland á að skipa öflugum þjónustuaðilum á mörgum sviðum sem komið geta til stuðnings fyrir greinina. Landfræðileg staða landsins er góð í miðju Atlantshafi mitt á milli Bandaríkjanna og Bretlands væntanlegra markaðssvæða. Loks má nefna að höfundi eru Suðurnesin kær og hann vildi skoða hvernig samkeppnismöguleikar þeirra væru á þessu sviði. Niðurstaða þessarar rannsóknar er sú að Ísland er samkeppnishæft í framboði, gæðum og verði á heilbrigðisþjónustu og að hún sé að jafnaði 50% - 90% ódýrari en sambærileg heilbrigðisþjónusta í Bandaríkjunum. Ísland getur því boðið þjónustuna á verði vanþróaðra ríkja í háþróuðu ríki
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/3637
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/3637