Back to search

Bifröst University

Viðskiptavæðing menningarlífsins og menningarvæðing viðskiptalífsins : áhrif stefnu íslenskra stórfyrirtækja í styrkveitingum til menningarmála á menningarstofnanir á árunum 2002 til 2008

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er niðurstaða lokaverkefnis míns í menningar- og menntastjórnun við Háskólann á Bifröst. Ég rannsakaði sex menningarstofnanir og tvö stórfyrirtæki með tilliti til áhrifa stefnu stórfyrirtækja í styrkveitingum til menningarmála á menningarstofnanir á tímabilinu 2002 til 2008. Greinileg hugmyndafræðileg tengsl eru á milli aðkomu einkafjármagns að menningarstarfsemi í Bretlandi og Bandaríkjunum og þeirrar stefnu sem tekin var upp á Íslandi. Það kom mér á óvart hversu ígrunduð markaðsstefna stórfyrirtækjanna er varðandi menningarstarfsemi og á hversu árangursríkan hátt þeim hefur tekist að nýta hana sér til framdráttar í nafni svokallaðrar samfélagslegrar ábyrgðar. Þá vakti það undrun mína hvað sértekjur menningarstofnana vegna samstarfs þeirra við stórfyrirtæki eru í raun litlar miðað við umfjöllun um samstarfið í fjölmiðlum og það almannatengslastarf sem þær vinna fyrir stórfyrirtækin. Loks vekur það athygli að notkun stórfyrirtækja á virðingu og trausti rótgróinna menningarstofnana í opinberri eigu til félagsmótunar og ímyndaruppbyggingar tíðkast nánast gagnrýnislaust hérlendis. Vonast ég til að rannsókn þessi eigi eftir að eiga hlut í að gera sambönd menningarstofnana og stórfyrirtækja gagnsærri og vera innlegg í umræðu um hvernig þeim verður best fyrir komið í framtíðinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Loftur Atli Eiríksson 1959-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3629
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3629

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Loftur Atli Eiríksson 1959-. Viðskiptavæðing menningarlífsins og menningarvæðing viðskiptalífsins : áhrif stefnu íslenskra stórfyrirtækja í styrkveitingum til menningarmála á menningarstofnanir á árunum 2002 til 2008. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3629