Bifröst University
Það er krefjandi að finna fólk sem hefur hugsjón : áherslur stjórnenda íþróttafélaga, hvati til sjálfboðinna verkefna og hugmyndafræði þjónandi forystu
Abstract
dc:description.abstractÍþróttir og íþróttastarfsemi tengjast víða samfélögum sterkum böndum og gegna stjórnendur íþróttafélaga mikilvægu ábyrgðar- og leiðtogahlutverki. Stjórnendur skipulagsheilda eru í lykilhlutverki við að framkalla jákvætt umhverfi sem eykur möguleika á árangri og því mikilvægt að stjórnun og forysta taki mið af hagsmunum og velferð fylgjenda. Fáar rannsóknir liggja fyrir um stjórnun íþróttafélaga en rannsóknir um þjónandi forystu benda til að hugmyndafræðin tengist árangri skipulagsheilda. Markmið rannsóknarinnar var að kanna áherslur stjórnenda íþróttafélaga og hvata þeirra til sjálfboðinna verkefna hjá íþróttafélögum sem vakið hafa eftirtekt fyrir öfluga starfsemi og árangur á landsvísu. Jafnframt var markmið rannsóknar að athuga hvort áherslur stjórnenda þessara félaga endurspegli hugmyndafræði þjónandi forystu. Framkvæmd var eigindleg rannsókn og tekin viðtöl við sjö stjórnendur íþróttafélaga til að varpa ljósi á viðfangsefnið og gögnin þemagreind. Niðurstöður benda til að stjórnendur íþróttafélaga leggi áherslu á eflingu iðkenda og velferð félagsmanna, þeir meti mikils framlag sjálfboðaliða og horfi til virkrar teymisvinnu. Umboð þeirra og hlutverk snúa að samskiptum, upplýsingamiðlun og ákvörðunartöku. Drifkraftur stjórnenda til starfa er gildismat en framtíðarsýn þeirra kristallast af bættri umgjörð og aðbúnaði. Niðurstöður benda til að áherslur stjórnenda íþróttafélaga hafi ómeðvitað nokkra skírskotun í hugmyndafræði þjónandi forystu og greind eru tengsl við lykilhugtök er einkenna hugmyndafræðina. Má þar nefna eflingu, jafningjabrag, auðmýkt, innri vitund og ráðsmennsku. Niðurstöður rannsóknar byggja á viðhorfum og reynslu takmarkaðs hóps viðmælenda og ekki mögulegt að alhæfa á grunni þeirra. Telja má að hugmyndafræði þjónandi forystu geti verið vænlegur valkostur við stjórnun íþróttafélaga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helgi Bogason 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35046
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35046