Back to search

Bifröst University

Árangursrík vöruþróun? Einkennandi þættir í vöruþróunarferli fyrirtækja á Íslandi og hlutverk neytenda í ferlinu

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar rannsóknarskýrslu snýr að greiningu og framsetningu lykilþátta í vöruþróunarferli fyrirtækja á Íslandi. Rannsakað var hvort íslensk fyrirtæki stundi vöruþróun á árangursríkan hátt, með hliðsjón af þátttöku hins almenna neytanda. Rannsóknin var framkvæmd með blönduðum rannsóknaraðferðum, þá hvort tveggja eigindlegum og megindlegum. Skyggnst var inn í vöruþróunarferli fyrirtækja á mismunandi mörkuðum þar sem tekin voru viðtöl við sérfræðinga á fræðasviðinu og rýnt var í fyrri rannsóknir á viðfangsefninu. Þá var spurningakönnun lögð fyrir almenning. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara var: Hvernig er vöruþróun íslenskra fyrirtækja háttað og hvert er hlutverk neytenda í ferlinu? Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar byggir á fyrirliggjandi fræðum sem og fyrri rannsóknum á viðfangsefninu. Niðurstöður rannsóknarinnar eru settar fram með þemagreiningu, myndrænum hætti og lýsandi tölfræði. Að lokum má finna hagnýtar tillögur sem ætlað er að hafa leiðbeinandi gildi fyrir fyrirtæki sem bæta vilja vöruþróunarferli sitt. Athuga skal að ekki er unnt að alhæfa niðurstöður rannsóknarinnar yfir á öll fyrirtæki á Íslandi né skýrir hún frá þátttöku allra Íslendinga en þó gefur hún greinargóða mynd af raunverulegri stöðu vöruþróunarmála hér á landi. Niðurstöður benda til þess að skortur er á stefnumótunarvinnu og markaðsrannsóknum tengdum vöruþróun innan íslenskra fyrirtækja. Greining á markaðsumhverfinu er gríðarlega mikilvæg þar sem mikil samkeppni er. Mikilvægt er að greina þarfir og kröfur neytenda áður en farið er út í þróunarferlið og með því að hafa neytandann með í ferlinu er auðveldara að uppfylla þarfir viðskiptavinarins. Að síðustu er mikilvægt að stjórnendur hafi í huga að vöruþróun er fjölþætt ferli sem krefst þess að því sé sinnt að alvöru. Neytendur geta tekið enn frekar þátt í ferlinu og mikið svigrúm er til úrbóta á sviði vöruþróunar hér á landi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helena Rós Trygggvadóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35037
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35037

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helena Rós Trygggvadóttir 1996-. Árangursrík vöruþróun? Einkennandi þættir í vöruþróunarferli fyrirtækja á Íslandi og hlutverk neytenda í ferlinu. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35037