Bifröst University
Staða mannauðsstjórnunar í íslensku verslunarfyrirtæki : upplifun stjórnenda og starfsfólks á mannauðsmálum fyrirtækisins
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar rannsóknarskýrslu snýr að greiningu og framsetningu lykilþátta mannauðsmála innan fyrirtækis sem starfar í verslunargeiranum á Íslandi. Rannsakað var hvort að tiltekið fyrirtæki styðjist við fræði mannauðsmála í daglegum rekstri. Markmið rannsóknarinnar var að gera grein fyrir upplifun stjórnenda og starfsfólks á mannauðsmálum innan fyrirtækisins. Þá er vonin að útkoma rannsóknarinnar geti gefið skýra mynd af mannauðsmálum fyrirtækisins. Rannsóknarspurningar eru svohljóðandi: Nýta stjórnendur fyrirtækisins sér fræði mannauðsmála í daglegum rekstri? Er samræmi milli útibúa fyrirtækisins varðandi starfsánægju? Framkvæmd rannsóknarinnar fór fram með tilviksrannsókn jafnt og eigindlegum- og megindlegum rannsóknaraðferðum. Tekin voru viðtöl við stjórnendur fyrirtækisins og spurningakönnun lögð fyrir starfsfólk. Fræðilegur bakgrunnur byggist eingöngu á fyrri rannsóknum á viðfangsefninu sem og fyrirliggjandi fræðum. Niðurstöður eru settar fram með þemagreiningu, lýsandi tölfræði og myndrænum hætti. Að lokum má finna hagnýtar tillögur sem ætlað er að hafa leiðbeinandi gildi fyrir viðkomandi fyrirtæki. Taka skal til athugunar að niðurstöður rannsóknarinnar eiga einungis við þau tilvik sem rannsóknin snýr að, fyrirtækið sjálft. Benda niðurstöður til þess að mannauðsmálum er sinnt af prýði innan fyrirtækisins. Engin skilgreind mannauðsstefna er þó innan fyrirtækisins en stjórnendur virðast þó átta sig á mikilvægi hennar og nota fræði mannauðsstjórnunar á einhvern máta. Einnig gefa niðurstöður til kynna að mikil starfsánægja ríkir innan fyrirtækisins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ástrós Hákonardóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35032
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35032