Back to search

Bifröst University

Málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar og ferlar

Abstract

dc:description.abstract

Við töku stjórnvaldsákvarðana eru stjórnvöld bundin m.a. af stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og málsmeðferðarreglum sem mynda hluta af þeim. Þetta eru þær lagareglur sem eru til umfjöllunar sem og mál sem koma til kasta umboðsmanns Alþingis vegna brota á þessum reglum. Málsmeðferðarreglurnar sem fjallað verður um eru leiðbeiningarskyldan, málshraðareglan, rannsóknarreglan og andmælaréttur. Farið er yfir mál tengd þessum reglum og þau sett upp sem teiknaðir ferlar. Valin mál sem komu til kasta umboðsmanns Alþingis eru reifuð í tengslum við hverja málsmeðferðarreglu og málið síðan rakið sem teiknaður ferill. Til hliðar við hvern feril er annar ferill sem sýnir hvernig málið ætti að vera. Yfirlitsferill Orkustofnunar fyrir vatnsaflsvirkjanir undir 10 MW er sýndur annars vegar sem texti og töflur og hins vegar sem teiknaður ferill. Markmiðið er að sýna muninn á samfelldum texta og myndrænni framsetningu á flóknu ferli. Í niðurstöðum er fjallað um hvernig til tókst og rannsóknarspurningunum svarað; er unnt að lýsa málsmeðferð stjórnsýsluákvarðana sem ferlum og eru þeir heppilegt verkfæri til að lýsa mögulegu flækjustigi við töku slíkra stjórnvaldsákvarðanna. Það er í raun ekkert því til fyrirstöðu að nýta ferla til að tjá og lýsa ferlum einföldum sem flóknum. Það hefur verið sýnt fram á minnkaða sóun í ferlum með því að teikna þá og er þá verið að tala um skýra ábyrgð á öllum stigum máls, betri skilning þeirra sem ákvörðunin beinist að sem og þeirra sem taka ákvarðanirnar, færri mistök og skemmri tíma við framkvæmd mála.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björg Jónsdóttir 1959-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35028
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35028

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björg Jónsdóttir 1959-. Málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar og ferlar. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35028