Bifröst University
„Því leikhúsið lokkar“ : hvert er bakland átta áhugaleikfélaga og hlutverk nærsamfélagsins í starfsemi þeirra?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn er starfsemi átta áhugaleikfélaga á Íslandi rannsökuð með tilliti til baklands þeirra og út frá viðhorfi þeirra viðmælenda sem tóku þátt en á Íslandi starfa tæplega 50 áhugaleikfélög vítt og breitt um landið. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hver staða áhugaleikfélaga er í íslensku samfélagi, hvernig starfsemi þeirra er háttað og hvað það er í samfélaginu sem skiptir máli fyrir áhugaleikfélög til að þau nái að blómstra. Leikfélögin voru valin með hliðsjón af virkni þeirra innan raða áhugaleikfélaga á Íslandi undanfarin ár en staðsetning þeirra réði einnig að einhverju leyti. Viðmælendur voru valdir með það í huga að þeir hefðu reynslu af stjórnarstörfum innan hreyfingarinnar og notast var við hálfopin viðtöl til að ná sem mestri dýpt í viðtölin. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingu um að bakland áhugafélaganna sé nokkuð sterkt og að helsta hlutverk nærsamfélagsins sé að tryggja öruggt húsnæði fyrir starfsemi félaganna svo að sköpunarkrafturinn sem býr í meðlimum félaganna fái notið sín.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fanney Valsdóttir 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35022
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35022