Back to search

Bifröst University

Stafræna hagkerið : skattlagning og helstu áskoranir er varða fjölþjóðafyrirtæki

Abstract

dc:description.abstract

Stafræna byltingin er að umbreyta hagkerfum, viðskiptamódelum og lífi allra borgara. Það hefur veruleg áhrif á alla þætti hagkerfa, þ.m.t. skattstofn og getu stjórnvalda til að hækka tekjur. Af þeirri ástæðu virðist sem skattalöggjöf hafi ekki náð að halda í við þær hröðu breytingar sem hafa orðið með komu stafræna hagkerfisins. Í ritgerðinni verður leitast svara við helstu víðtækari áskorunum stafræna hagkerfisins varðandi fjölþjóðafyrirtæki á sviði beinnar skattlagningar. Verða tekið til skoðunar hvort mögulegt sé á grundvelli íslenskrar skattalöggjafar að skattleggja tekjur sem Airbnb aflar sér hér á landi. Auk þess verður farið yfir ákveðnar úrlausnir varðandi víðtækari áskoranir stafræna hagkerfisins sem lagðar voru fram í aðgerðaráætlun BEPS gegn rýrnun skattstofns og tilfærslu hagnaðar auk þeirra skýrslna sem hafa verið gefnar út í kjölfarið. Að lokum verður svo farið yfir aðgerðir Evrópusambandsins og einhliða aðgerðir annarra ríkja. Komst höfundur að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að skattleggja tekjur Airbnb á grundvelli núgilandi skattalöggjafar. Airbnbn er með stafræna nærveru og íslensku lögin ná einfaldlega ekki yfir þess háttar atvinnustarfsemi. Ef ætlunin væri að öðlast skattlagningarétt hér á landi, þyrfti því að breyta lögunum. Verður þó að huga að ýmsu áður en það yrði gert, því ef Ísland myndi innleiða einhliða aðgerðir líkt og önnur ríki hafa gert, getur það leitt til tvísköttunar og ósamræmi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aldís Jana Arnarsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34278
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34278

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aldís Jana Arnarsdóttir 1989-. Stafræna hagkerið : skattlagning og helstu áskoranir er varða fjölþjóðafyrirtæki. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34278